top of page

Listasafn Reykjavíkur - Ásmundarsafn: Loftskurður - Sýningarlok

508A4884.JPG

þriðjudagur, 23. ágúst 2022

Listasafn Reykjavíkur - Ásmundarsafn: Loftskurður - Sýningarlok

Sýningarlok á Loftskurði í Ásmundarsafni
Síðasti dagur sýningarinnar Rósa Gísladóttir og Ásmundur Sveinsson: Loftskurður er sunnudagurinn 28. ágúst.

Rósa Gísladóttir sýnir verk sín í samtali við verk Ásmundar Sveinssonar. Myndhöggvarar tveggja tíma mætast í samtali sem veitir nýja sýn á arfleifð Ásmundar ásamt því að kynna fyrir gestum ný verk starfandi listamanns.

Rósa hefur á ferli sínum fengist við ýmsan efnivið en hún er þekktust fyrir gifsskúlptúra sem hafa tekið á sig ólík form og stærðir í gegnum tíðina. Í verkum sínum vinnur Rósa gjarnan með listrænar tilvísanir í arkitektúr og menningarsöguna og mun vinna með Ásmundarsafn sjálft sem skúlptúr. Ásmundur reisti „kúluhúsið“ við Sigtún í nokkrum áföngum á árunum 1942-59. Hann hafði þar heimili og vinnustofu og mun vinnustofustemmning þeirra beggja, Ásmundar og Rósu, mætast og vera gerð sýnileg.

Rósa Gísladóttir (f. 1957) nam myndlist í Þýskalandi, Bretlandi og á Íslandi. Verk hennar hafa verið sýnd víða hérlendis og erlendis, þar á meðal í Scandinavia House í New York, Saatchi Gallery í London, Listasafni Reykjavíkur, Hafnarborg, Listasafni Árnesinga og Berg Contemporary. Árið 2020 var Rósa fyrsti handhafi Gerðarverðlaunanna sem eru veitt framúrskarandi myndlistarmanni sem vinnur í skúlptúr og rýmisverk.




Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page