top of page

Listasafn Reykjavíkur: Umræðuþræðir - Krist Gruijthuijsen & Anna Gritz

508A4884.JPG

miðvikudagur, 2. mars 2022

Listasafn Reykjavíkur: Umræðuþræðir - Krist Gruijthuijsen & Anna Gritz

Umræðuþræðir: Krist Gruijthuijsen & Anna Gritz
Fimmtudag 3. mars kl. 20.00 í Hafnarhúsi
Fyrstu gestir ársins í fyrirlestraröðinni Umræðuþræðir eru Krist Gruijthuijsen, forstöðumaður KW Institute for Contemporary Art í Berlín og Anna Gritz, sýningarstjóri KW.

Fyrirlesturinn fer fram á ensku. Skráning HÉR

Í erindinu KW Institute for Contemporary Art Then and Now munu Gruijthuijsen og Gritz fjalla um sögu og stefnu KW og kynna framtíðarsýn sem tekst á við bæði breyttar þarfir listamanna og áskoranir liststofnanna í menningarumhverfi samtímans.

Krist Gruijthuijsen, sýningarstjóri og listgagnrýnandi, hefur starfað sem forstöðumaður KW Institute for Contemporary Art í Berlín frá árinu 2016. Þar áður starfaði hann sem listrænn stjórnandi Grazer Kunstverein (frá 2012) og kenndi við myndlistardeild Sandberg Instituut í Amsterdam. Hann var einn stofnenda Kunstverein Amsterdam og forstöðumaður stofnunarinnar frá 2009-2012. Hann hefur sýningarstýrt fjölda sýninga, m.a. í Artists Space, New York og í Stedelijk safninu í Amsterdam. Ásamt sýningarteymi KW hefur hann sett upp verkefni og sýningar listamanna sem gjarnan litið hefur verið framhjá eða standa á jaðrinum með einum eða öðrum hætti. Má nefna listamenn á borð við Anna Daučíková, Beatriz González, Hiwa K, and Hassan Sharif. Goethe Institute styrkir heimsókn Gruijthuijsen til landsins.

Anna Gritz er sýningarstjóri KW og frá júní 2022 mun hún taka við sem forstöðumaður Haus am Waldsee í Berlín. Hún hefur sýningarstýrt fjölda sýninga við KW m.a. einkasýningar Judith Hopf, Lynn Hershman Leeson, Steve Bishop, Amelie von Wulffen, og Michael Stevenson, auk samsýninga á borð við The Making of Husbands: Christina Ramberg in Dialogue and Zeros and Ones (með Kathrin Bentele og Ghislaine Leung). Áður starfaði hún sem sýningarstjóri hjá at the South London Gallery (SLG), The Institute of Contemporary Arts (ICA) og Hayward Gallery í London. Gritz hefur skrifað greinar fyrir fjölda listtímarita og sýningarskrár. Hún var í sýningarráðgjöf fyrir Tvíæringinn í Sydney árið 2016 og hefur setið í innkaupanefnd FRAC Lorraine, Metz frá 2019.

Umræðuþræðir er samstarfsverkefni Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar, Listaháskóla Íslands, og Listasafns Reykjavíkur. Í tengslum við verkefnið hefur allt frá árinu 2012 verið boðið hingað til lands fólki sem nýtur viðurkenningar í hinum alþjóðlega listheimi, ýmist á sviði listsköpunar, fræðastarfa eða sýningarstjórnunar. Lagt hefur verið upp með að skapa vettvang hérlendis fyrir alþjóðleg tengsl og umræður; gestirnir kynnast íslensku listalífi, stunda gestakennslu um leið og þau kynna eigin verk og hugðarefni með opnum fyrirlestrum í safninu.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page