top of page

Listasafn Reykjavíkur: Jæja - Guðjón Ketilsson

508A4884.JPG

föstudagur, 30. september 2022

Listasafn Reykjavíkur: Jæja - Guðjón Ketilsson

Sýningaropnun 1. október kl 16:00


„Jæja“ - orðið er eins og fundinn hlutur í íslensku tungumáli. Maður getur gripið til þess við nánast öll tækifæri. Eitt og sér merkir það harla fátt en hver og einn getur gert það að sínu og sett í samhengi þannig að það öðlist merkingu. Guðjón Ketilsson skapar myndlist sína með svipaðri aðferðafræði, hann kemur auga á hluti sem hann gefur gildi með því að taka þá til handargagns og sýna okkur í nýju samhengi.

Guðjón hefur komið víða við á löngum ferli. Einkum hefur hann lagt rækt við skúlptúr en teikning leikur einnig stórt hlutverk í listsköpun hans. Í verkum hans er áhersla á handverk áberandi, enda eru verk hans kunn fyrir listfengi, hugvitsemi og alúð. Manneskjan er þar fyrir miðju, líkaminn og framlenging hans í gegnum föt og verkfæri, sem og híbýli og annað í hennar nánasta umhverfi. Þessu miðlar Guðjón með áhrifaríku samspili nærveru og fjarveru, efniskenndar og tómarúms, yfirborðs og inntaks. Þá er tungumálið veigamikill þáttur, síður út frá merkingu orðanna og fremur tengt heimi táknfræðinnar, þar sem samhengi stakra og ólíkra tákna dregur fram heildstæða merkingu.

Á yfirlitssýningu um listferil Guðjóns er von á ýmsu. Þar má sjá skúlptúra samsetta úr fundnum húsgögnum sem hann hefur meðhöndlað á sinn einstaka hátt, fínpússaða trémuni sem líkjast fáséðum nytjahlutum á minjasafni, hárnákvæmar teikningar af líkamspörtum, hús og byggingar af öllum gerðum, samsafn af drasli sem hann hefur viðað að sér og raðað upp í eina heild, ljósmyndir af uppröðuðum munum og fatnað – allskonar fatnað útskorinn í tré, eins og skó, lendarskýlur og hatta. Öll eru verkin á mannlegum skala, þau spretta úr samspili hugar og handar og virka eins og framlenging á manneskjunni.

Guðjón Ketilsson er fæddur 1956 og er sjötti listamaðurinn sem valinn er til þátttöku í sýningaröð Listasafns Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum, þar sem farið er yfir feril lykilpersóna í íslensku listalífi. Hvert og eitt þeirra er valið með tilliti til einstaks framlags þeirra og sérhæfingar á sínu sviði, bæði hvað viðvíkur miðlum, aðferðum og viðfangsefnum. Slík stöðutaka á sér stað í framsetningu lykilverka frá ólíkum tímum í Vestursal Kjarvalsstaða og útgáfu sýningarskrár þar sem fjallað um ferilinn í samhengi listasögunnar og samtímans. Sýningarstjóri er Markús Þór Andrésson.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page