Listasafn ASÍ: Opið fyrir umsóknir - umsóknarfrestur til 30. ágúst
föstudagur, 15. júlí 2022
Listasafn ASÍ: Opið fyrir umsóknir - umsóknarfrestur til 30. ágúst
Listasafn ASÍ kallar eftir umsóknum frá myndlistarfólki
3. ágúst 2022: Athugið að umsóknarfresturinn hefur verið framlengdur til miðnættis 30. ágúst 2022!
Listasafn ASÍ auglýsir eftir umsóknum frá listafólki sem vill taka þátt í sýningum á vegum safnsins 2022/23. Sýningarnar verða á tveimur stöðum á landinu. Auk sýninganna kaupir safnið verk af þeim sem fyrir valinu verður/verða. Listráð safnsins fer yfir allar tillögur og velur listamann/listhóp til samvinnu um sýningar og til að kaupa af verk fyrir allt að tvær milljónir króna. Þetta er í fjórða sinn sem safnið kallar eftir umsóknum frá listafólki í þessum tilgangi.
Safnið stendur straum af öllu sem viðkemur sýningarstaðnum, flutningaskostnaði, tryggingum, vinnu listamannsins, ferðum og uppihaldi. Vinna listamannsins felst m.a. í uppsetningu sýninganna, listamannaspjalli, leiðsögn og móttöku skólahópa. Greiðslur taka mið af Framlagssamningi SÍM frá 2015. Engin sérstök greiðsla kemur fyrir framleiðslukostnað listaverka fyrir sýningarnar og verkin verða áfram í eigu viðkomandi að undanskildum þeim verkum sem safnið kaupir.
Áhugasamir eru beðnir um að senda umsókn á netfangið info@listasafnasi.is eigi síðar en á miðnætti þriðjudaginn 30. ágúst 2022. Umsóknir skulu innihalda eftirtalin gögn (vinsamlegast sendið fylgigögnin með tölvuósti í einu pdf-skjali merktu nafni viðkomandi):
1. Ferilskrá - þ.m.t. upplýsingar um nafn, kennitölu, heimilisfang, símanúmer og netfang.
2. Hugleiðing/þankar - hámark 500 orð.
3. Sýnishorn af allt að 5 verkum með stuttum skýringartexta fyrir hvert verk (hámark 200 orð hver). Ath. virða ber hámarksfjölda verka. Hafa ber innkaupastefnu safnsins í huga (sjá hér að neðan).
Opnað fyrir umsóknir: 7. júlí 2022
Skilafrestur tillagna: 30. ágúst 2022
Niðurstöður kynntar: Fyrir lok september 2022
Listasafn ASÍ vinnur að því að koma upp nýjum sýningarsal fyrir sýningar safnsins. Samhliða þeirri vinnu er unnið eftir áætlun þar sem lögð er áhersla á að kaupa ný verk inn í safneignina og efla sýningarhald í samstarfi við aðrar stofnanir og samtök víða um land. M.a. er skipulögð er tvíhliða sýningardagskrá, annars vegar sýningar á nýjum verkum samtímalistafólks og hins vegar kynning á eldri verkum í safneigninni, en þar er notast við krafta listafólks á ýmsum sviðum. Lögð er sérstök áhersla á samvinnu við skóla í þeim landshluta eða bæjarfélagi sem sýningarnar fara fram.
Innkaupastefna Listasafns ASÍ tekur mið af því menntunar- og miðlunarátaki sem safnið hefur nú ráðist í með sýningarhaldi víða um land. Valin verða og keypt inn ný verk þar sem viðfangsefni og/eða miðill endurspegla tíðarandann með afgerandi hætti.
Listráð Listasafns ASÍ skipa sýningarstjórarnir Dorothée Kirch og Daníel Björnsson ásamt safnstjóra Elísabetu Gunnarsdóttur sem jafnframt er formaður. Listráðið er skipað til tveggja ára í senn og er rekstrarstjórn safnsins til ráðuneytis um innkaupastefnu og val á listafólki.
Listasafn ASÍ var stofnað árið 1961. Iðnrekandinn og bókaútgefandinn Ragnar Jónsson í Smára lagði grundvöllinn að listasafninu með því að gefa ASÍ málverkasafn sitt – um 120 myndir – eftir marga af þekktustu myndlistarmönnum þjóðarinnar. Ósk Ragnars var sú að stofnað yrði listasafn sem kæmi listinni á framfæri við vinnandi fólk í landinu. Listasafn ASÍ hefur alla tíð starfað með þetta að leiðarljósi og hefur m.a. sérhæft sig í myndlistarsýningum sem settar eru upp á vinnustöðum og í stofnunum víða um land. Safnið hefur vaxið jafnt og þétt frá stofnun þess fyrir tæpum sextíu árum og geymir nú um 4200 verk.
Frekari upplýsingar veitir:
Elísabet Gunnarsdóttir safnstjóri Listasafns ASÍ
Guðrúnartúni 1 105 Reykjavík
+354 868 1845 og elisabet@listasafnas.is
www.listasafnasi.is