top of page

Listasafn Ísafjarðar - Aðlögun

508A4884.JPG

fimmtudagur, 11. júní 2026

Listasafn Ísafjarðar - Aðlögun

Listasafn Ísafjarðar býður gesti hjartanlega velkomna á opnun
samsýningar Ragnhildar Stefánsdóttur og Valgerðar Sigurðardóttur: Aðlögun. Opnunin fer fram 12. júní kl. 16:00 í sýningarsal Listasafns Ísafjarðar á annarri hæð í Safnahúsinu Ísafirði. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Aðlögun er óhjákvæmilegur hluti af tilverunni og við erum stöðugt að laga okkur að þeim
aðstæðum sem lífið færir okkur.

Í þessari sýningu mætast verk sem urðu til á ólíkum stöðum og við mismunandi aðstæður, en
deila nú sama rými. Hér taka þau á sig nýja merkingu í samtali hvert við annað og það samhengi
sem þau mynda saman. Aðlögun birtist ekki aðeins í samræðu verkanna heldur einnig í ferlinu að
þeim. Listamennirnir hafa brugðist við breytingum, óvæntum hindrunum og nýjum áherslum.
Verkin hafa mótast af aðstæðum sínum rétt eins og mótið mótast af afsteypunni. Annað getur
ekki orðið til án hins.

Ragnhildur Stefánsdóttir (f.1958) lauk MFA-prófi frá Carnegie Mellon University í Pittsburgh
árið 1987. Hún skapar skúlptúrverk og vinnur með mótagerð og afsteypur sem leið til að
rannsaka form, endurtekningu og umbreytingu. Ragnhildur hefur sýnt víða hér á landi og
erlendis.

Valgerður Sigurðardóttir (f. 1992) útskrifaðist með BA-gráðu frá Listaháskóla Íslands árið
2015 og MFA-gráðu í skúlptúr frá KASK í Gent árið 2018. Hún býr og starfar í Antwerpen í
Belgíu og hefur verið á skrá hjá Keteleer Gallery frá árinu 2019. Valgerður hefur sýnt verk sín
víða á alþjóðlegum vettvangi.

Vakin er athygli á því að sama dag, kl. 17:00, opnar sýningin Fagurstúfur / Darling eftir Kötu
Jóhanness og Rondi Park í Slunkaríki í Edinborgarhúsinu. Gestum gefst þannig tækifæri til að
heimsækja báðar sýningarnar og njóta fjölbreyttrar myndlistar á Ísafirði.

Aðgangur ókeypis
Sýningin er styrkt af Myndlistarsjóði

//

Ísafjörður Art Museum warmly welcomes guests to the opening of the duo exhibition Adaption by Ragnhildur Stefánsdóttir and Valgerður Sigurðardóttir. The opening will take place on June 12th at 4:00 PM in the exhibition hall of Ísafjörður Art Museum, located on the second floor of the Culture House (Safnahúsið) in Ísafjörður. Light refreshments will be served.

Adaption is an inevitable part of existence, and we are constantly adjusting to the circumstances
life brings our way.

This exhibition brings together works created in different places and under different conditions,
now sharing the same space. Here, they take on new meanings through their dialogue with one
another and through the context they create together. Adaptation is evident not only in the
interaction between the works but also in the processes behind them. The artists have responded
to change, unforeseen obstacles, and shifting priorities.

The works have been shaped by their circumstances, just as a mould is shaped by the cast it
contains. One cannot come into being without the other.

Ragnhildur Stefánsdóttir (b. 1958) received her MFA from Carnegie Mellon University in
Pittsburgh in 1987. She creates sculptural works and works extensively with mould-making and
casting as a means of investigating form, repetition, and transformation. Ragnhildur has
exhibited widely in Iceland and internationally.

Valgerður Sigurðardóttir (b. 1992) graduated with a BA from the Iceland University of the
Arts in 2015 and received an MFA in Sculpture from KASK School of Arts in Ghent in 2018.
She lives and works in Antwerp, Belgium, and has been represented by Keteleer Gallery since
2019. Valgerður has exhibited widely internationally and in Iceland.

On the same day, at 5:00 PM, Fagurstúfur by Kata Jóhanness and Rondi Park opens at
Slunkaríki in Edinborgarhúsið, offering an excellent opportunity to visit both exhibitions and
enjoy a diverse range of contemporary art in Ísafjörður.

Admission is free.
The exhibition is supported by the Icelandic Visual Arts Fund

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page