top of page

Listasafn Árnesinga: Listamannaspjall og sýningarlok

508A4884.JPG

þriðjudagur, 30. ágúst 2022

Listasafn Árnesinga: Listamannaspjall og sýningarlok

3. september 14:00 // LOKAHELGI með spennandi listamannaspjalli:
EGGERT PÉTURSSON, INGÓLFUR ARNARSSON, KEES VISSER og RÚRÍ verða í samræðum um myndlist og alþjóðleg tengsl á áttunda áratugnum og listsköpun þeirra í dag.


Eruð þið ánægð ef þið megið spyrja um eitthvað?
Tengslamyndun milli austurs og norðurs
4. júní – 4. september 2022
Á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar var framúrstefnulistamönnum frá austantjaldsríkjunum mikið kappsmál að tengjast hinum vestræna listheimi.
Á sama tíma var vettvangur íslenskrar samtíðarlistar að opnast upp, m.a. fyrir stefnum á borð við flúxus og póst-list. Það kom til vegna ört stækkandi tengslanets listamanna og gallería á borð við SÚM og listagalleríð að Suðurgötu 7. Þessi tvíhliða tilraun að auknum tengslum leiddi svo til fjörlegra samskipta og nokkurra sýninga ungverskra listamanna hér á landi.
Við munum varpa ljósi á vinnubrögð listamannanna við þessa tengslamyndun og sýningagerð á Íslandi, á tíma þar sem strangar hömlur voru til staðar á ferða- og tjáningarfrelsi í Austur-Evrópu.
Samvinna íslenskra og unverskra listamanna varð uppspretta spaugilegra viðburða sem vöktu fólk til umhugsunar á sama tíma og þeir báru tíðum vott um sjálfshæðni.
Sumarsýning Listasafns Árnesinga 2022 verður endurflutningur þessara viðburða ásamt nýrri verkum eftir sömu listamenn sem tóku þátt í þessu samstarfi á sínum tíma og blésu með því lífi í íslenska samtímalist á áttunda áratug síðustu aldar.
Listamenn:
Eggert Pétursson
Endre Tot
Gábor Attalai
Géza Perneczky
Ingólfur Arnarsson
Kristján Guðmundsson
Kees Visser
Rúrí
Sigurður Guðmundsson
Sýningarstjóri: Zsóka Leposa
Aðstoðarsýningarstjóri: László Százados

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page