top of page

Listasafn Árnesinga: FemLink - Art (FL´Art) með Pop-up sýningu á Blómstrandi dögum

508A4884.JPG

miðvikudagur, 10. ágúst 2022

Listasafn Árnesinga: FemLink - Art (FL´Art) með Pop-up sýningu á Blómstrandi dögum

FemLink – sýning á Blómstrandi dögum í Listasafni Árnesinga, Hveragerði.
11. – 14. ágúst 2022

Á Blómstrandi dögum í Hveragerði 11 – 14 ágúst 2022 mun Listasafn Árnesinga sýna vídeóverk frá alþjóðlegum samtökum listakvenna FemLink – Art.

FemLink – Art (FL’Art) var stofnað 2005 af myndlistakonunni Veronique Sapin frá Frakklandi og margmiðlunarlistakonunni C.M. Judge frá Bandaríkjunum með það að markmiði að sýna vídeóverk listakvenna í alþjóðlegu samhengi.
145 listakonur frá 64 löndum eru þátttakendur í FemLink og hafa þær unnið verk fyrir 12 þematískar vídeósamsetningar sem innihalda 24 – 34 vídeó hvert þema.
Á vefsíðu FemLink segir “Í sögulegu samhengi hafa konur átt erfitt uppdráttar í listaheiminum og list kvenna var kölluð “kvenna list” í lítillækkandi tilgangi. Enn í dag eru listakonur útskúfaðar í of mörgum löndum heims. Það er meginmarkmið FL’Art” að þær þær fái viðurkenningu sem listamenn.
Á þessari sýningu er það þemað “ Vital” sem varð fyrir valinu og inniheldur það 24 vídeó eftir 24 listakonur frá 24 löndum.

Listakonurnar eru: Sima Zureikat, Jórdanía. Evgenija Demnievska, Serbía. Elena Arzuffi, Ítalía. Samirah Alkassim, Palestína Kamila B. Richter, frá Tékklandi. Van Breest Smallenburg, Holland. Aki Nakazawa, Japan. Véronique Sapin, Frakkland. Raquel Kogan/Lea van Steen, Brasilía. Ana Bezelga, Portugal. Najmun Nahar Keya, Bangladesh. Aliaa El-Gready, Egyptaland. Esther Johson, Bretland. C. M. Judge, Bandaríkin. Dorte Jelstrup, Danmörk. Sigrún Harðardóttir, Ísland. Monica Dower, Mexikó. Verena Schaukal, Þýskaland. Alejandra Delgado, Bolivía. Judith Lava, Austurríki. Carolina Saquel, Chile. Minoo Iran pour Mobarakeh, Íran. Christie Widiarto, Ástralía. Raya Mazigi, Líbanon.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page