top of page

Listamannaspjall með Unni Óttarsdóttur á sýningunni Tengslavefir

508A4884.JPG

miðvikudagur, 9. september 2026

Listamannaspjall með Unni Óttarsdóttur á sýningunni Tengslavefir

Sunnudaginn 13. september kl. 15.00 býður Unnur Óttarsdóttir upp á listamannaspjall á sýningunni
Tengslavefir á Hlöðuloftinu, Korpúlfsstöðum. Öll velkomin.

Á sýningunni Tenglsavefir er ofið úr ósýnilegum tengslaþráðum. Innan rýmisins myndast þrívíður vefur þar sem einn þráður leggst yfir annan sem smám saman byggir upp heild.

Speglaskúlptúrar, þátttökuverk, fundnir hlutir, textílverk, málverk og vídeóverk endurspegla ýmsar hliðar og mismunandi æviskeið myndlistarkonunnar. Unnur vefur úr þráðum sem liggja innra með henni og áhorfandanum. Verk eftir nemendur og fyrri þátttakendur í verkum hennar mynda einnig þræði í sýningarvefnum. Unnið er með tengsl á milli listakonunnar og áhorfandans, á milli manna, á milli einstaklinga og listaverka og samspili á milli verkanna sjálfra.

Unnur Óttarsdóttir er myndlistarmaður og listmeðferðarfræðingur. Hún lauk MA-gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2015 og doktorsprófi í listmeðferð frá University of Hertfordshire árið 2006. Verk hennar hafa verið sýnd víða, meðal annars á Íslandi, í Færeyjum, Svíþjóð, Brasilíu og Portúgal.

Sýningin stendur yfir til 20. september 2026. Opnunartími: fimmtudaga–sunnudaga kl. 14.00–17.00.
www.unnurottarsdottir.art

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page