top of page

Listamannaspjall með Kristoffer Ala-Ketola: Fimmtudagurinn Langi í SÍM Gallery

508A4884.JPG

fimmtudagur, 25. september 2025

Listamannaspjall með Kristoffer Ala-Ketola: Fimmtudagurinn Langi í SÍM Gallery

Sýning opin: 18.9.2025–27.9.2025
Listamannaspjall: 25.09.26 19-20
SÍM Salurinn, Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík

Sýningarstjórn: Ástríður Jónsdóttir
Listamannadvölin er fjármögnuð af Finnska Menningarsjóðnum

SÍM Residency, í samvinnu við Finnska Menningarsjóðinn, kynnir The Nightspell, einkasýningu eftir Kristoffer Ala-Ketola, gestalistamann, í SÍM salnum.

The Nightspell kallar fram næturlíf í allri sinni dularfullu, seiðandi dýrð. Þegar næturhúmið sveipar hulu yfir helgisiði og skuggaathafnir eru öll velkomin og heimurinn snýst upp í andhverfu sína. Nánd verður til í skjóli nafnleysis, viðkvæmni umbreytist í styrk og mörkin milli hins hulda og hins berskjaldaða mást út - meðan útlögum er boðið til samsætis. Þau, sem stíga inn í næturgaldurinn, eru leyst út með verndarseiðum og heillaóskum.

Kristoffer Ala-Ketola er þverfaglegur listamaður með aðsetur í Helsinki, Finnlandi. Hann útskrifaðist frá Yale School of Art með meistaragráðu í skúlptúr árið 2019 og lauk bakkalárgráðu frá Finnsku Listaakademíunni árið 2016. Verk hans hafa verið sýnd í 4th Ward Project Space í Chicago, Kunsthalle Helsinki, Kunsthalle Turku, Exhibition Centre WeeGee í Espoo, auk þess sem hann hefur sýnt myndbönd á Helsinki International Film Festival og Video Art Festival Turku.

Verk Ala-Ketola taka fyrir persónusköpun, táknfræði, merkingarfræði, ýmis sálfræðifyrirbæri, mögulegar framtíðarsýnir og hinsegin fræði, með áherslu á tilfinningalíf, löngun og drauma. Hann byggir listsköpun sína á ótryggum tilveruformum og notar til þess hreyfimyndir, ljósmyndun, skúlptúr, innsetningar, málun og skrif. Hann sameinar skáldskap, sjálfsævisögu og fræði í sjónrænt mál þar sem umfjöllunarefnin bæði endurspegla og ganga í berhögg hvort við annað. Úr verður víxlverkun merkinga sem snertir þemu eins og löngun, einsemd, umbreytingu, heilun og bjargræði.

//

English


Exhibition Open: 18.9.2025–27.9.2025
Artist Talk: 25.09.26 19-20
SÍM Gallery, Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Iceland

Curator: Ástríður Jónsdóttir
Residency granted by The Finnish Cultural Foundation

SÍM Residency, in collaboration with The Finnish Cultural Foundation, presents The Nightspell, a solo exhibition by artist-in-residence Kristoffer Ala-Ketola.

The Nightspell conjures the night in all its mysterious, witchy glory. From the rituals of rave culture, to folkloric sacraments, a shared nocturnal language tells tales of connection and contradiction. Anonymity invites community, fragility resurfaces as strength and the hidden merges with the exposed - as outcasts are reeled in. Well wishes and spells of protection are freely given to those who dare partake.

Kristoffer Ala-Ketola is a multidisciplinary artist based in Helsinki, Finland. He graduated from Yale School of Art with a Master of Fine Arts in sculpture in 2019 and received his Bachelor’s degree at the Finnish Academy of Fine Arts in 2016. His work has been exhibited in 4th Ward Project Space in Chicago, Kunsthalle Helsinki, Kunsthalle Turku, Exhibition Centre WeeGee in Espoo and he has also participated in video screenings at the Helsinki International Film Festival and Video Art Festival Turku.

Ala-Ketola’s work engages in character building, symbolism, semiotics, various psychological phenomena, speculative futures, and queer theory with recurring themes of emotion, longing, and dreaming. Using moving image, photography, sculpture, installation, painting, and text he anchors his practice in the uncertain forms of existence. Merging fiction, autobiography, and theory into visual language – its signs reflecting and contradicting each other – He creates a vortex of associations through themes of desire, solitude, change, healing, and coping.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page