top of page

Listamannaspjall með Hlyni Hallssyni

508A4884.JPG

föstudagur, 17. apríl 2026

Listamannaspjall með Hlyni Hallssyni

Listasafn Árnesinga
Austurmörk 21, Hveragerði
19. apríl 2026
kl. 14:00

Verið velkomin á listamannaspjall með Hlyni Hallssyni sunnudaginn 19. apríl klukkan 14:00.
ENN OG AFTUR – SCHON WIEDER – ONCE AGAIN

Hlynur Hallsson (1968) stundaði myndlistarnám á Akureyri og í Reykjavík og framhaldsnám í myndlist í Hannover, Hamborg og Düsseldorf. Hann hefur tekið þátt í um 120 samsýningum og sýnt verk sín á yfir 70 einkasýningum meðal annars í Listasafni Reykjavíkur, Nýlistasafninu, Listasafninu á Akureyri, hjá Kuckei+Kuckei í Berlín, Kunstraum München, hjá Chinati Foundation í Texas og hjá Overgaden í Kaupmannahöfn. Hann var safnstjóri Listasafnsins á Akureyri 2014-2024 og hefur einnig unnið sjálfstætt sem sýningastjóri. Hlynur hefur kennt myndlist við Listaháskólann og Myndlistaskólann á Akureyri. Hann hefur einnig gefið út nokkrar bækur og bókverk.
Verk Hlyns snúast gjarnan um samskipti, tengingar, texta, tungumál, landamæri, stjórnmál, hversdagslega hluti og hvað við lesum úr aðstæðum. Hann vinnur gjarnan með texta, teikningar, ljósmyndir, gjörninga, hluti, vídeó og innsetningar.

---
Aritst talk // Hlynur Hallsson
ENN OG AFTUR – SCHON WIEDER – ONCE AGAIN

Hlynur Hallsson (*1968) lives and works in Iceland and Germany. Language and communication play an essential roles in his practice as an artist and curator, and in his work, which moves across mediums, from sprayed texts and installations to performance and photography. Through conceptual and purposeful multilingualism, Hallsson explores the semantic difficulties of communication surrounding a work of art and the cultural preconditions of, and multifarious opportunities for, interpretation. He has exhibited solo exhibitions at Kunstraum München, Kunstverein Kassel, Reykjavík Art Museum, The Living Art Museum, Reykjavík, Chinati Foundation, Marfa, Texas, Overgaden, Copenhagen and is represented by Kuckei + Kuckei gallery, Berlin.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page