top of page

Listamannaspjall: Elsa Dóróthea Gísladóttir

508A4884.JPG

fimmtudagur, 30. apríl 2026

Listamannaspjall: Elsa Dóróthea Gísladóttir

Listamannaspjall með Elsu Dórótheu Gísladóttur
Grafík salurinn, Hafnarhúsi, Reykjavík
3. Maí kl. 15:00

Stefnumót - Encounter
Verið velkomin á listamannaspjall með Elsu Dórótheu Gísladóttur í samtali við Eygló
Harðardóttur og Sólveigu Aðalsteinsdóttur, sunnudaginn 3. maí kl. 15:00.

Elsa Dóróthea Gísladóttir hefur starfað að myndlist í þrjá áratugi. Hún nam við Myndlistaog handíðaskóla Íslands 1986–1990 og stundaði framhaldsnám við AKI í Hollandi 1991–
1994. Hún hefur setið í stjórn Nýlistasafnsins og Myndlistaskólans í Reykjavík, starfað í
úthlutunarnefndum á vegum SÍM og hlotið starfslaun listamanna. Elsa hefur verið virk á
vettvangi myndlistar bæði hér á landi og erlendis undanfarna áratugi.
Á sýningunni Stefnumót er um að ræða verk sem unnin eru upp úr mánaðardvöl á
vinnustofu í Varanasi á Indlandi 2024. Verkin byggjast á sex ára rannsókn Elsu á litum og
litarefnum, þar sem áherslan hefur verið á náttúrulegan, fundinn og staðbundinn efnivið,
auk alkemískra ferla við litagerð. Á síðustu árum hafa gjörningar verið mikilvægur hluti af
myndlist Elsu. Sýningar hennar einkennast af umbreytingarferlum og gjörningatengdri
úrvinnslu og framsetningu.

//

Artist Talk with Elsa Dóróthea Gísladóttir
Grafíksalurinn, Hafnarhús, Reykjavík
May 3rd at 15:00

Encounter - Stefnumót
We welcome you to join us for an artist talk with Elsa Dóróthea Gísladóttir, in
conversation with Eygló Harðardóttir and Sólveig Aðalsteinsdóttir, on Sunday, May 3rd at
15:00.

Elsa Dóróthea Gísladóttir has been active in the visual arts for three decades. She studied
at the Icelandic College of Art and Crafts (1986–1990) and pursued postgraduate studies
at AKI in the Netherlands (1991–1994). Throughout her career, she has served on the
boards of The Living Art Museum and the Reykjavík School of Visual Arts and participated
in grant allocation committees for SÍM. Elsa has remained dedicated to her practice within
the art community, both locally and internationally, over the last few decades.

The exhibition Encounter features works developed during a month-long residency in
Varanasi, India, in 2024. These works are rooted in Elsa’s six-year research into colors
and pigments, focusing on natural, found, and local materials, as well as alchemical
processes in pigment making. In recent years, performance art has become a vital
component of Elsa's practice. Her exhibitions are characterized by transformative
processes and performance-based execution and presentation

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page