Listamannaspjall

fimmtudagur, 8. október 2026
Listamannaspjall
SÍM Resiedensy, Þriðjudaginn 13. október kl 18: 00
Gestalistamenn SÍM bjóða alla velkomna á listamannaspjall klukkan 18:00 þriðjudaginn 13. október. Listamannaspjallið verður haldið í SÍM Residency, Seljavegi 32, 101 Reykjavík. Á spjallinu kynna alþjóðlegir listamenn sem dvelja nú í gestavinnustofunni verk sín, listrænar áherslur, rannsóknir og verkefni í vinnslu. Þau munu deila hugmyndum og vinnuferlum sem liggja að baki verkum þeirra og veita innsýn í ólíkar aðferðir, sjónarhorn og reynslu sem móta listsköpun þeirra. Vinsamlegast athugið að mæta tímanlega þar sem dyrunum verður lokað kl 18:10.
Listamenn:
Dany Klotz - DE
Stine Rørbech - DK
Eléonore Piret El Maysour - FR/MA
Lou J. Seidel - DE
Hanna Valle - F
Facebook viðburður: https://fb.me/e/7kuBOYURq
