Listamannahúsið Varmahlíð 2027 - opið fyrir umsóknir

fimmtudagur, 5. nóvember 2026
Listamannahúsið Varmahlíð 2027 - opið fyrir umsóknir
Listamannahúsið Varmahlíð 2027 - opið fyrir umsóknir
Horft er til allra listamanna óháð því hvort þeir eru skráðir í fagfélög og er fólk úr hvers kyns listgreinum hvatt til að sækja um dvöl. Íbúðarhúsið Varmahlíð er búið öllum húsgögnum og eldunartækjum.
Gestalistamenn fá endurgjaldslaus afnot af húsinu til að vinna að listgrein sinni en gert er ráð fyrir að þeir kynni verk sín og listgrein í samfélaginu. Dvalartímabilum fyrir árið 2027 er úthlutað frá janúar til og með desember, 2 til 4 vikur í senn.
Varmahlíðarhúsið (Breiðamörk 31) er eitt elsta íbúðarhús Hveragerðisbæjar, reist árið 1929. Húsið er einlyft, bárujárnsklætt timburhús með lágreistu mænisþaki. Húsið hefur hlotið faglega endurgerð og er dvöl í því endurgjaldslaus fyrir listamenn en óskað er eftir því að þeir kynni listsköpun sína og efli með því menningaráhuga í Hveragerði.
Sótt er um í gegnum íbúagátt Hveragerðisbæjar. Þar þarf að fara inn á rafrænum skilríkjum. Velja þarf hnappinn umsóknir og svo menningar-, atvinnu- og markaðssvið. Þar undir er hægt að smella á umsókn um dvöl í Varmahlíð.
Nánari upplýsingar hjá móttöku Hveragerðisbæjar, sími 483-4000, netfang: mottaka@hveragerdi.is.
