Listamanna spjall : Olgu Bergmann og Sabine A. Fischer

fimmtudagur, 24. september 2026
Listamanna spjall : Olgu Bergmann og Sabine A. Fischer
Listasafn Reykjanesbæjar, sunnudagin 27. september kl 14:00 - 15:00
Samtal listakvennanna Olgu Bergmann og Sabine A. Fischer við sýningastýrurnar Viktoríu Guðnadóttur og Yndu Eldborg um ný verk listakvennanna sem gerð voru sérlega fyrir sýninguna Nína, okkar kærasta Nína.
Sabine A. Fischer (hún/hennar) vinnur með ljósmyndun, teikningu og innsetningar þar sem minni, náttúra og sjálfsmynd fléttast saman. Í nýju verki fyrir sýninguna tekur hún okkur inn í skóg bernskunnar og veltir fyrir sér augnablikinu þegar væntingar samfélagsins til kyns fara að þrengja að frelsi barnsins. Verk Nínu verða hluti af þessu landslagi og samtali um bernsku, leitina að sjálfinu og þau brot sem smám saman raðast saman í sjálfsmynd.
Olga Bergmann (hún/hennar) vinnur með skúlptúr, innsetningar og hugmyndir um náttúru, samfélag og það hvernig við flokkum heiminn í kringum okkur. Í Klíkunni (2026) hefur hópur ólíkra trévera hreiðrað um sig á stalli. Hver þeirra hefur sinn karakter og sérkenni, en þrátt fyrir ólíkt útlit er ljóst að þau tilheyra sömu klíkunni.
Verkið fjallar um hvernig fólk leitar hvert annað uppi og þekkir þau sem tilheyra sama hópi. Hinsegin fólk hefur lengi notað merki og tákn til að finna hvert annað og skapa sér staði til að hittast. Verk Olgu á í samtali við Höfuð, Kött og Sæhest eftir Nínu Sæmundsson, verk sem virðast í fyrstu ólík en tilheyra hér sömu klíkunni.
