top of page

List fyrir alla auglýsir eftir listviðburðum fyrir skólaárið 2024-2025

508A4884.JPG

fimmtudagur, 15. febrúar 2024

List fyrir alla auglýsir eftir listviðburðum fyrir skólaárið 2024-2025

List fyrir alla auglýsir eftir umsóknum um listviðburði eða verkefni á sviði barnamenningar fyrir grunnskólabörn. Umsóknarfrestur er til 17. mars næstkomandi.

List fyrir alla er barnamenningarverkefni á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytis, sem ætlað er að miðla listviðburðum til barna og ungmenna um land allt og jafna þannig aðgengi barna á grunnskólaaldri að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag. Starfandi listamenn sem og stofnanir og aðrir lögaðilar er sinna barnamenningu á einhvern hátt geta sótt um.

Valnefnd metur umsóknir og gildi þeirra með hliðsjón af því hvernig þær falla að markmiðum verkefnisins List fyrir alla. Listviðburðir og verkefni skulu í öllum tilvikum vera unnin af metnaði og af fagfólki. Við mat á umsóknum er valnefnd heimilt að leita umsagnar, gerist þess þörf.
Ákvörðun um úthlutun mun liggja fyrir eigi síðar en 17. maí 2024.

Nánar má lesa um verkefnið undir UM VERKEFNIÐ hér á heimasíðunni og þar má einnig finna handbók fyrir listamenn sem vert er að skoða.

Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi hér á heimasíðu List fyrir alla undir UMSÓKN.

Nánari upplýsingar má fá hjá verkefnastjóra List fyrir alla, Elfu Lilju eða senda tölvupóst á info@listfyriralla.is

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page