top of page

List fyrir alla: Opið fyrir umsóknir

508A4884.JPG

fimmtudagur, 19. febrúar 2026

List fyrir alla: Opið fyrir umsóknir

List fyrir alla auglýsir eftir umsóknum um listviðburði eða
verkefni á sviði barnamenningar fyrir grunnskólabörn.

List fyrir alla er barnamenningarverkefni á vegum menningar- nýsköpunar og háskólaráðuneytisins sem ætlað er að miðla listviðburðum til barna og ungmenna um land allt og jafna þannig aðgengi barna á grunnskólaaldri að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag.

Starfandi listamenn svo og stofnanir og aðrir lögaðilar er sinna barnamenningu á einhvern hátt geta sótt um. Umsóknarfrestur er til 22. mars 2026.

Mat á umsóknum
Valnefnd metur umsóknir og gildi þeirra með hliðsjón af því hvernig þær falla að markmiðum verkefnisins List fyrir alla. Listviðburðir og verkefni skulu í öllum tilvikum unnin af metnaði og af fagfólki. Við mat á umsóknum er valnefnd heimilt að leita umsagnar, gerist þess þörf.

Ákvörðun úthlutunar mun liggja fyrir eigi síðar en 29. maí 2026

Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á heimasíðu List fyrir alla https://listfyriralla.is/

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page