top of page

List/Jörð

508A4884.JPG

fimmtudagur, 14. maí 2026

List/Jörð

Art/Earth – List/Jörð - vinnustofa og sýningarverkefni.

List/Jörð er þverfaglegt list- og vísindaverkefni sem Stray Light hefur hrint í framkvæmd í samstarfi við aðila í Belgíu, Hollandi og á Íslandi. Verkefnið leiðir saman lista- og vísindafólk til að rannsaka loftslagsbreytingar og svokallaða vendipunkta, með sérstakri áherslu á bráðnun jökla, vatnakerfi, þurrka og flóð. Rannsóknirnar fara fram með blöndu af listrænni rannsókn, vettvangsvinnu og staðbundinni sköpun og skráningu. Á grunni þeirrar sýnar að loftslags- breytingar séu ekki einungis vistfræðilegt neyðarástand heldur einnig kreppa ímyndunaraflsins, beinir List/Jörð sjónum að því hvernig flókin vísindaleg þekking birtist í listum.

Verkefnið samanstendur af vinnustofudvöl, fyrirlestrum, ráðstefnu og opinberum viðburðum sem eiga sér stað á svæðum þar sem áhrif loftslagsbreytinga eru skýr og áþreifanleg — allt frá borgarumhverfi og árkerfum í Belgíu og Maas-dalnum til jökla og landslags á Íslandi. Verkefnið er unnið í nánu samstarfi við samstarfsaðila úr vísindum, þar á meðal Háskóla Íslands, De Jong Academy í Belgíu og Horizon Europe verkefnið ICELINK. Markmið verkefnisins List/Jörð er að stuðla að nýjum leiðum til skilnings, ríkari þátttöku og opinberrar umræðu með því að skoða list sem mikilvægs hlekks milli vísindalegrar þekkingar og mannlegrar reynslu, og sem vettvang til að velta fyrir sér hvernig samfélög geta tekist á við óafturkræfar breytingar af völdum loftslagsbreytinga á jörðinni.

Verkin á sýningu á listafólkið:
Julie Sjöfn Gasiglia, Vala Sigþrúðar Jónsdóttir, Sigrún Gyða Sveinsdóttir, Þóranna Dögg Björnsdóttir, Kevin Trappeniers, Nicolas Baeyens, Stijn Demeulenaere, Nick Steur og Mattias De Craene.
Taka skal fram að verkin eru í vinnslu og verða áfram þróuð næstkomandi mánuði í tengslum við verkefnið og sýnd víðar.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page