top of page

Letterstedtski Sjóðurinn kallar eftir umsóknum

508A4884.JPG

miðvikudagur, 20. ágúst 2025

Letterstedtski Sjóðurinn kallar eftir umsóknum

Letterstedtski sjóðurinn hefur það hlutverk að styrkja norrænt samstarf og
samstarf við Eystrasaltsríkin á sviði rannsókna, lista, vísinda og fræða.

Sjóðurinn kallar hér með eftir umsóknum um styrki haustið
2025. Umsóknarfrestur er til 15. september nk.

1.
Íslandsdeild Letterstedtska sjóðsins veitir styrki vegna ferða frá Íslandi til
Norðurlanda og til Eystrasaltsríkjanna.
Styrkupphæð jafngildir lægsta flugfargjaldi milli viðkomandi landa, en hvorki eru
veittir styrkir til ferða innan landanna né til uppihalds. Þeir einir koma til greina sem
lokið hafa námi og hyggja á frekari rannsóknir eða þekkingarleit á starfssviði sínu,
svo sem við rannsóknir á vísinda- eða fræðastofnun eða með þátttöku í fundum eða
ráðstefnum.
Umsóknareyðublað og upplýsingar er að finna á vefsíðu sjóðsins:
www.letterstedtska.org/anslag/anslagsutlysning/
Þessum umsóknum má skila á íslensku.

Nánari upplýsingar veita:
Bryndís Sverrisdóttir, ritari, í síma 8530602 eða bryndis.sverris@gmail.com
Guðný Gerður Gunnarsdóttir, formaður, í síma 8535546 eða gudnygerdur@simnet.is

2.
Aðalstjórn Letterstedtska sjóðsins (Letterstedtska föreningens huvudstyrelse) í
Stokkhólmi veitir eftirtalda styrki:
a) Styrki að upphæð 10-50.000 SEK til ráðstefnuhalds, til að kosta heimsóknir
fyrirlesara, til vísindaferða, prentunar, þýðinga og netútgáfu.
b) Styrki til útgáfu doktorsritgerða og rannsóknarstarfa. Forsenda styrkveitinga er að
umrædd starfsemi hafi samnorrænt gildi eða tilvísun.
c) Samnorrænar stofnanir geta sótt um styrki til bóka- og tækjakaupa.
d) Styrki til þýðinga, prentunar og útgáfu rita og bóka á Norðurlandamálum. Sjá
nánar á vefsíðu sjóðsins: Nyhlénska medlen för översättningar.
e) Árið 2025 eru 150 ár liðin frá stofnun sjóðsins og af því tilefni standa einnig til
boða sérstakir styrkir fyrir unga fræðimenn og listamenn með áherslu á norræna
samvinnu.

Umsóknir til aðalstjórnar skal senda á sænsku, dönsku eða norsku í síðasta
lagi 15. febrúar 2025.

Umsóknareyðublöð og upplýsingar er að finna
á: www.letterstedtska.org/anslag/anslagsutlysning

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page