top of page

Letterstedtska sjóðurinn: Opið fyrir umsóknir

508A4884.JPG

fimmtudagur, 25. ágúst 2022

Letterstedtska sjóðurinn: Opið fyrir umsóknir

AUGLÝSING UM STYRKI FRÁ LETTERSTEDTSKA SJÓÐNUM haustið 2022


Letterstedtski sjóðurinn hefur það hlutverk að styrkja norrænt samstarf og samstarf við Eystrasaltsríkin á sviði rannsókna, lista, vísinda og fræða.

Sjóðurinn kallar hér með eftir umsóknum um styrki haustið 2022 með umsóknarfresti til 15. september nk.

Þeir einir koma til greina sem lokið hafa námi og hyggja á frekari rannsóknir eða þekkingarleit á starfssviði sínu, svo sem við rannsóknir á vísinda- eða fræðastofnun eða með þátttöku í fundum eða ráðstefnum.

1. Íslandsdeild Letterstedtska sjóðsins veitir styrki vegna ferða frá Íslandi til Norðurlanda og til Eystrasaltsríkjanna. Styrkupphæð jafngildir lægsta flugfargjaldi milli viðkomandi landa, en hvorki eru veittir styrkir til ferða innan landanna né til uppihalds.

Umsóknir með greinargóðum upplýsingum um tilgang fararinnar skal senda á íslensku á netfangið
bryndis.sverris@gmail.com

Nánari upplýsingar veita:
Bryndís Sverrisdóttir, ritari, í síma 8530602 eða bryndis.sverris@gmail.com
Þór Magnússon, formaður, í síma 8921731 eða thor@thjodminjasafn.is


2. Aðalstjórn Letterstedtska sjóðsins (Letterstedtska föreningens huvudstyrelse) í Stokkhólmi veitir styrki að upphæð 10-50.000 SEK til ráðstefnuhalds, til að kosta heimsóknir fyrirlesara, til vísindaferða, prentunar, þýðinga og netútgáfu. Þá eru veittir styrkir til útgáfu doktorsritgerða og rannsóknarstarfa. Forsenda styrkveitinga er að umrædd starfsemi hafi samnorrænt gildi eða tilvísun. Þá geta samnorrænar stofnanir sótt um styrki til bóka- og tækjakaupa.

Umsóknir til aðalstjórnar skal senda á sænsku, dönsku eða norsku til:
Letterstedtska föreningens huvudstyrelse
Box 1074, SE-101 39 Stockholm

Allar nánari upplýsingar um sjóðinn og styrkveitingar úr honum er að finna á
www.letterstedtska.org/anslag/anslagsutlysning/

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page