Leirlistafélagið: Í samsæti hlutanna

miðvikudagur, 24. júní 2026
Leirlistafélagið: Í samsæti hlutanna
Í samsæti hlutanna /
In the Company of Objects
45 ára afmælissýning Leirlistafélags Íslands opnar í Stykkishólmi
Afmælissýning Leirlistafélags Íslands, opnaði á HönnunarMars fyrr á þessu ári og ferðast nú til Stykkishólms þar sem hún opnar í Norska húsinu þann 3. júlí klukkan 17:00-19:00.
Sýninguna prýða verk 34 leirlistamanna sem fást við nytjahluti. Leirmunir eru órjúfanlegur hluti hversdagslífsins. Matardiskar sem notaðir eru daglega, kaffibollar sem ganga kynslóða á milli og blómavasar sem settir eru á mitt borðið þegar gesti ber að garði mynda umgjörð samverustunda og verða vettvangur tengslamyndunnar. Áhorfendum er boðið að eyða tíma með þessum ólíku hlutum og íhuga bæði nýjar og gamlar leiðir til að nýta keramik til samveru.
Opið verður alla daga frá 11:00-17:00. Síðasti dagur sýningar verður sunnudagurinn 9. ágúst.
Sýningarstjórn: Agnes Ársælsdóttir
Sýningarnefnd: Aldís Yngvadóttir, Guðný Rúnarsdóttir, Ylona Supèr
Sýningarhönnun: Dorka Csora
Grafísk hönnun: Agnar Stefánsson
Listamenn eru:
Aldís Yngvadóttir, Anna Sigríður Hróðmarsdóttir, Anna Story, Antonía Bergþórsdóttir, Auður Gunnarsdóttir, Auður Inga Ingvarsdóttir, Ása Tryggvadóttir, Daði Harðarson, Dagný Gylfadóttir, Elín Guðmundsdóttir, Erla Huld Sigurðardóttir, Erna Jónsdóttir, Guðný Hafsteinsdóttir, Guðný M. Magnúsdóttir, Guðný Rúnarsdóttir, Hafdís Brands, Halldóra Hafsteinsdóttir, Halla Ásgeirsdóttir, Helga Arnalds, Ingibjörg Ósk Þorvaldsdóttir, Jane Alexander, Kata Sümegi, Katla Rúnarsdóttir, Katrín V. Karlsdóttir Dyrving, María Skarphéðinsdóttir, Melkorka Matthíasdóttir, Ólöf Erla Bjarnadóttir, Ólöf Sæmundsdóttir, Sigríður Guðsteinsdóttir, Sunna Björg Sigfríðardóttir, Valdís Ólafsdóttir, Ylona Supèr, Þóra Breiðfjörð, Þórdís Baldursdóttir.
