top of page

Leirlistafélag Íslands: Í samsæti hlutanna

508A4884.JPG

fimmtudagur, 16. apríl 2026

Leirlistafélag Íslands: Í samsæti hlutanna

Í samsæti hlutanna / In the Company of Objects
Leirlistafélagið 45 ára

Leirlistafélag Íslands opnar 45 ára afmælissýningu sína í Grafíksalnum, Tryggvagötu 17, fimmtudaginn 7. maí klukkan 17:00-20:00.

Sýninguna Í samsæti hlutanna prýða verk 34 leirlistamanna sem fást við nytjahluti. Leirmunir eru órjúfanlegur hluti hversdagslífsins. Matardiskar sem notaðir eru daglega, kaf-fibollar sem ganga kynslóða á milli, sparistell sem aðeins er dregið fram við hátíðleg tilefni og blómavasar sem settir eru á mitt borðið þegar gesti ber að garði mynda umgjörð samverustunda og verða vettvangur tengslamyndunar. Áhorfendum er boðið að eyða tíma með þessum ólíku hlutum og íhuga bæði nýjar og gamlar leiðir til að nýta keramik til samveru.

LISTAMANNASPJALL / Í samsæti hlutanna

Sunnudaginn 10. maí bjóðum við upp á listamannaspjall með tveimur af 34 sýnendum, þeim Antoníu Bergþórsdóttur og Ólöfu Erlu Bjarnadóttur, spjallið verður klukkan 15.00-16.00. Listamannaspjallinu verður stýrt af Agnesi Ársælsdóttur sem sá einnig um sýningarstjórn // samtal um sýninguna, verkin og ferlið - ásamt léttum veitingum.

Listamenn eru:

Aldís Yngvadóttir, Anna Sigríður Hróðmarsdóttir, Anna Story, Antonía Bergþórsdóttir, Auður Gunnarsdóttir, Auður Inga Ingvarsdóttir, Ása Tryggvadóttir, Daði Harðarson, Dagný Gylfadóttir, Elín Guðmundsdóttir, Erla Huld Sigurðardóttir, Erna Jónsdóttir, Guðný Haf-steinsdóttir, Guðný M. Magnúsdóttir, Guðný Rúnarsdóttir, Hafdís Brands, Halldóra Haf-steinsdóttir, Halla Ásgeirsdóttir, Helga Arnalds, Ingibjörg Ósk Þorvaldsdóttir, Jane Alexan-der, Kata Sümegi, Katla Rúnarsdóttir, Katrín V. Karlsdóttir Dyrving, María Skarphéðinsdót-tir, Melkorka Matthíasdóttir, Ólöf Erla Bjarnadóttir, Ólöf Sæmundsdóttir, Sigríður Guðsteinsdóttir, Sunna Björg Sigfríðardóttir, Valdís Ólafsdóttir, Ylona Supèr, Þóra Breiðfjörð, Þórdís Baldursdóttir.

Sýningarstjórn er í höndum Agnesar Ársælsdóttur.


Sýningin er styrkt af Reykjavíkurborg.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page