top of page

Leifur Ýmir Eyjólfsson: Bílar

508A4884.JPG

miðvikudagur, 28. október 2026

Leifur Ýmir Eyjólfsson: Bílar

Neskirkja, Sýningin stendur yfir 04.10 - 29.11 2026



Ég hugsa að það sé mjög gott að fá yfirsýn. Geta áttað sig á þessu. Stíga upp á ægishjálminn. Hvað er í boði. Hvað langar mig. Hvað væri sniðugt. Það eru margir bílar. Nokkrir sem koma til greina. Þarf ég að eiga einn. Eða tvo væri líka hægt.

Hvernig ætti maður að líta á þetta. Er þetta að segja eitthvað um mig. Eða er þetta ekki bara hryllingur allir þessir bílar. Eða er ég að reyna vera eitthvað annað en praktískur. Eða bara töff. Eða betra að labba bara. Eða eru þetta bara allt ljótir bílar. Allir eins. Það er þó ekki sanngjarnt. Þeir eru fallegir þegar það kemur vont veður. Og þegar ég þarf að gera stórinnkaup. Eða er þetta allt svona illa skipulagt að ég get ekki labbað. Eða er bara ekki gert ráð fyrir því að ég labbi. Ætti ég að flytja mig nær verslunarkjarna. Eða á ég að fá mjólkina senda heim. Eða eru hjólin frjálsari en fæturnir. Eða ætti ég að hætta að flýta mér svona.

Meira um viðburðin hér : http://www.neskirkja.is/um-neskirkju/syningar/

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page