top of page

Leifar - Gjörningur í Nýlistasafninu: Unnur Andrea Einarsdóttir

508A4884.JPG

föstudagur, 28. júlí 2023

Leifar - Gjörningur í Nýlistasafninu: Unnur Andrea Einarsdóttir

Verið velkomin á gjörning Unnar Andreu Einarsdóttur, 29. júlí kl. 15:00. Gjörningurinn er hluti af gjörningaseríunni Leifar, sem fer fram yfir sumartímann í Nýlistasafninu, Marshallhúsinu. Þau áþreifanlegu efni og hlutir sem falla til við gjörningana verða eftir í sýningarsalnum og þjóna sem efniviður fyrir þá listamenn sem á eftir koma. Verkin verða skrásett með ýmsum hætti: hljóðupptöku, í gegnum skapandi skrif og fangaðir á vídeó eða myndir. Loks verður efnið skrásett og varðveitt í Gjörningaarkífi Nýló, en arkífið verður aðgengilegt í sýningarsalnum yfir sumartímann. Viðburðaröðin vísar í ýmsar áttir, í félags-pólitíska menningarsköpun, varðveislu heimilda, helgisiði og leikreglur.

Sýningarstjóri er Liisi Kõuhkna, listamennirnir sem taka þátt eru: Kamile Pikelyte, Wiola Ujazdowska, Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir, Kolbeinn Hugi, Unnur Andrea Einarsdóttir, Clare Aimée.

Sýningarstjórinn bauð tveimur listamönnum að taka þátt í gjörningaseríunni. Eins og í boðhlaupi færðu þeir kylfuna áfram til næstu tveggja listamanna, sem síðan buðu þeim eftirfarandi og svo framvegis.


Gjörningadagskrá
29.07.2023 kl. 15 — Unnur Andrea Einarsdóttir (IS) + Frznte & Jae Tyler

03.08.2023 kl. 15:30 — Clare Aimée (CA/IS)

03.08.2023 kl. 17:00 — Umræðuviðburður, Agnes Ársælsdóttir stýrir.

03.08.2023 kl. 19:00 — 21:00 Finissage

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page