top of page

Leifar í Nýlistasafninu: Gjörningur, pallborðsumræður og lokahóf

508A4884.JPG

fimmtudagur, 3. ágúst 2023

Leifar í Nýlistasafninu: Gjörningur, pallborðsumræður og lokahóf

Velkomin á lokahóf Leifar — gjörning og pallborðsumræður í Nýlistasafninu, Marshallhúsinu, fimmtudaginn 3. ágúst 2023.

Dagskráin hefst klukkan 15:30 með gjörning Clare Aimée. Gjörningurinn er sá síðasti í röð sex gjörninga sem farið hafa fram í Nýló yfir sumartímann. Í verkum sínum vinnur Clare oft með gjörningavafið látbragð og gagnvirka upplifun og býður fólki inn í kunnuglega og ljóðræna ramma. Verið hjartanlega velkomin, en undir það búin að bíða í biðröð. Ummerki gjörningsins verða hluti af sýningunni að honum loknum. 

Klukkan 17:00 hefjast pallborðsumræður undir yfirskriftinni Margt hefur gerst. Agnes Ársælsdóttir leiðir samtal með listamönnunum sem tóku þátt í gjörningaröðinni um spurningar sem tengjast varðveislu gjörninga: Hvaða spor skilja gjörningar eftir sig, og hvernig á festa þá á mynd, vídeó, texta og önnur skjöl? Hvað geta þessar heimildir sagt okkur um vinnuna sem var unnin og hvaða upplýsingar glatast í ferlinu? Hvert er mikilvægi arkífsins?

Listamennirnir sem taka þátt eru: Kamile Pikelyte, Wiola Ujazdowska, Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir, Kolbeinn Hugi, Unnur Andrea Einarsdóttir, Clare Aimée. Spjallið helst í hendur við rannsóknarverkefni Agnesar sem heitir Hvar eru gjörningarnir geymdir? undir handleiðslu Hlyns Helgasonar, dósents í listfræði hjá HÍ og Sigríði Regínu Sigurþórsdóttur, safneignarfulltrúa Nýló (í fæðingarorlofi). Með verkefninu leitast Agnes við að kortleggja sögu gjörninga á Íslandi í gegnum viðtöl, blaðaúrklippur og grams í safneignum.

Eftir pallborðsumræður verður lokahóf sýningarinnar, en hún stendur til 6. ágúst næskomandi. Verið öll velkomin — til að horfa, hlusta, velta vöngum og forvitnast frekar. 

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page