top of page

Leifar: Gjörningur í Nýlistasafninu - Wiola Ujazdowska

508A4884.JPG

föstudagur, 7. júlí 2023

Leifar: Gjörningur í Nýlistasafninu - Wiola Ujazdowska

Verið velkomin á gjörning Wiola Ujazdowska, laugardaginn 9. Júlí kl. 16:00 í Nýlistasafninu. Gjörningurinn ber titilinn "How my great -grandfather was turned to a cabbage or 10.000 tears of a drown dogs" og er hluti af gjörningaseríunni "Leifar", sem fer fram yfir sumartímann í Nýlistasafninu, Marshallhúsinu. Þau áþreifanlegu efni og hlutir sem falla til við gjörningana verða eftir í sýningarsalnum og þjóna sem efniviður fyrir þá listamenn sem á eftir koma. Verkin verða skrásett með ýmsum hætti: hljóðupptöku, í gegnum skapandi skrif og fangaðir á vídeó eða myndir. Loks verður efnið skrásett og varðveitt í Gjörningaarkífi Nýló, en arkífið verður aðgengilegt í sýningarsalnum yfir sumartímann. Viðburðaröðin vísar í ýmsar áttir, í félags-pólitíska menningarsköpun, varðveislu heimilda, helgisiði og leikreglur.

Sýningarstjóri er Liisi Kõuhkna, listamennirnir sem taka þátt eru: Kamile Pikelyte, Wiola Ujazdowska, Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir, Kolbeinn Hugi, Unnur Andrea Einarsdóttir, Clare Aimée.

Sýningarstjórinn bauð tveimur listamönnum að taka þátt í gjörningaseríunni. Eins og í boðhlaupi færðu þeir kylfuna áfram til næstu tveggja listamanna, sem síðan buðu þeim eftirfarandi og svo framvegis.


Gjörningadagskrá

09.07.2023 kl. 16 — Wiola Ujazdowska (PL/IS)

15.07.2023 kl. 17— Katrín Inga (IS)

22.07.2023 TBA— Kolbeinn Hugi (IS/DE)

29.07.2023 kl. 15 — Unnur Andrea Einarsdóttir

03.08.2023 kl. 15:30 — Clare Aimée (CA/IS)

03.08.2023 kl. 17:00 — Umræðuviðburður, Agnes Ársælsdóttir stýrir

03.08.2023 kl. 19:00 — Finissage

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page