Leiðsögn með: Guðjóni Ketilssyni & Birtu Guðjónsdóttur

fimmtudagur, 22. október 2026
Leiðsögn með: Guðjóni Ketilssyni & Birtu Guðjónsdóttur
Ásmundarsalur, Sunnudaginn 25 október kl 17:00 - 18:00
Sunnudaginn 25. október kl. 17 munu feðginin Guðjón Ketilsson og Birta Guðjónsdóttir eiga opið samtal og leiða gesti um sýninguna Spor í Ásmundarsal.
Á sýningunni Spor mætast fjórir verkhlutar sem ekki hafa verið sýndir áður; teikningar þar sem handskrifaður textamassi fyllir myndflötinn; hversdagslegir, fundnir hlutir sem öðlast nýja nærveru og annað hlutverk; olíukrítarteikningar af fundnum hlutum og stækkuð fingraför þar sem persónulegar hugleiðingar fylgja línum líkamans í teikniskrift. Sameiginlegur kjarni verkanna felst í því hvernig hugsun, nærvera og skynjun taka á sig sýnilega og efnislega mynd og skilja eftir sig ummerki.
Léttar veigar í boði og frítt inn.
