top of page

Leiðsögn listamanns

508A4884.JPG

fimmtudagur, 23. apríl 2026

Leiðsögn listamanns

Katrín Elvarsdóttir leiðir gesti um sýninguna Blómstrandi framtíð í Hafnarhúsi á sumardaginn fyrsta, fimmtudag 23. apríl kl. 20.00. Leiðsögnin fer fram á ensku.
Á sýningunni Blómstrandi framtíð beinir Katrín sjónum sínum að plöntum sem hafa ferðast milli heimkynna. Í verkunum mætast grípandi fegurð og hugleiðingar um uppruna. Hún veltir fyrir sér hvað það þýðir að tilheyra, að festa rætur – vera aðfluttur og samt hluti af heild.

Fjórar seríur sýningarinnar fjalla um inngrip mannsins í náttúruna: Plöntur eru fluttar á milli staða sem gjafir, sem eign, fyrir forvitnissakir eða í nafni rannsókna og framþróunar. Í forgrunni eru fjórar tegundir; kirsuberjatré, bananatré, fenjagreni og kínversk plastblóm, sem hver um sig býr yfir langri og áhugaverðri sögu sem tengir saman ólíkar heimsálfur.

Katrín Elvarsdóttir (f. 1964) lagði stund á nám í myndlist og ljósmyndun í Bandaríkjunum. Ljósmyndaverk hennar einkennast af brotakenndum en jafnframt óræðum frásögnum, þar sem leikið er með hugmyndina um sameiginlega minningarsköpun. Verkin innihalda oft frásagnir af dularfullum atburðum sem áhorfandinn verður óafvitandi hluti af, þar sem ákveðnir hlutir eru sýnilegir en öðru er leyft að liggja á milli hluta, og það sem útaf stendur kallast fram í hugskotsjónum áhorfandans.

Það eru síðustu forvöð að sjá sýninguna í Hafnarhús, en síðasti sýningardagur er sunnudagur 26. apríl.

Fimmtudag 23. apríl kl. 20.00
Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhús

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page