Leiðsögn í Gerðarsafni: Rósa Gísladóttir - Fora
fimmtudagur, 6. júlí 2023
Leiðsögn í Gerðarsafni: Rósa Gísladóttir - Fora
Rósa Gísladóttir leiðir gesti í gegnum sýninguna Fora í Gerðarsafni, sunnudaginn 9. júlí kl. 14:00. Öll eru hjartanlega velkomin.
Þegar gengið er inn á sýningu Rósu Gísladóttur vaknar tilfinning um að við séum stödd samtímis á fornum samkomustað og í rústum framtíðarinnar. Í sölunum ríkir ró. Þyngd verkanna veitir okkur jarðtengingu. Eða er hún ógnandi? Súlur sem þessar standa í þúsundir ára, þangað til þær gera það ekki lengur. Verðum við vitni að því augnabliki þegar þær falla?
Verk Rósu eru könnun á geometríu og klassískri formgerð með vísunum í arkitektúr og rússneskan konstrúktivisma. Skúlptúrar hennar spila á mörkum þess klassíska og nútímalega jafnframt í fagurfræði og efnisnotkun. Verk í við, gifs, keramik og gler skapa samspil við umhverfi sitt hvort sem það er staðbundið verk í borgarlandslagi eða skúlptúrar sem hverfast um sýningarrými.
Rósa Gísladóttir (f. 1957) nam myndlist í Þýskalandi, Bretlandi og á Íslandi. Verk hennar hafa verið sýnd víða hérlendis og erlendis, þar á meðal í Scandinavia House í New York, Saatchi Gallery í London, Listasafni Reykjavíkur, Hafnarborg, Listasafni Árnesinga og Berg Contemporary. Hún var fyrsti handhafi Gerðarverðlaunanna 2020, en þau eru veitt árlega framúrskarandi myndlistarmanni sem vinnur með skúlptúr og rýmisverk.