Laus sýningartímabil í Borgarbókasafninu Spönginni
miðvikudagur, 10. maí 2023
Laus sýningartímabil í Borgarbókasafninu Spönginni
Í Borgarbókasafninu Spönginni í Grafarvogi er sýningarsalur auk þess sem hægt er að sýna í safninu, bæði á fyrstu og annarri hæð eftir því sem hentar.
Á næstunni eru laus sýningartímabil og er óskað eftir umsóknum frá listamönnum.
Stærð salarins er u.þ.b. 43 fm2 (720x600cm) og lofthæð um 260cm.
Salurinn er fjölnota þ.e. er notaður fyrir ýmiskonar viðburði og fundi ásamt því að vera fyrir sýningar.
Þeir sem áhuga hafa á að sýna eru beðnir um að senda umsókn hér: https://borgarbokasafn.is/eydublod/umsokn-um-syningarhald
Myndir úr safninu: https://borgarbokasafn.is/bokasofn/spongin/adstada-og-salaleiga-i-sponginni
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Steinunn Stephensen
sigridur.steinunn.stephensen@reykjavik.is sími: 411 6230