top of page
Laugardaginn 14 nóvember kl 15:00 – 16:30 verður opin vinnustofa á Bakkastöðum 113.

miðvikudagur, 11. nóvember 2026
Laugardaginn 14 nóvember kl 15:00 – 16:30 verður opin vinnustofa á Bakkastöðum 113.
Kl:15:15 mun Páll Hjaltason arkitekt segja byggingasögu hússins og vinnustofunnar sem er sérsniðin að þörfum myndhöggvara.
Fullt af myndum, teikningum og kíkt ofan í kassa.
Kl:16:00 leiðsögn um útilistaverkin sem eru á lóðinni.
Þungar veitingar.
Inngangur á vinnustofuna sjávarmegin.
Frá Bakkastöðum til Korpúlfsstaða
Svo er hægt að taka sér göngutúr niður að sjó og koma við hjá listaverkinu Kletti, sem stendur við Leirvoginn, ganga svo upp á Korpúlfsstaði og göngugarpar geta fengið skutl á Bakkastaðina eftir bílnum sínum.
Lokun á Hlöðuloftinu sunnudaginn 15.11.
Opnunartími: 14:00 – 18:00
bottom of page
