top of page
LÍA listasjóður auglýsir vinnuaðstöðu

fimmtudagur, 11. júní 2026
LÍA listasjóður auglýsir vinnuaðstöðu
LÍA listasjóður er stofnaður í minningu Emilíu Þórunnar og hefur það að markmiði að veita listamönnum rými til að vinna, skapa og þróa verk sín.
Nú er opið fyrir umsóknir um vinnuaðstöðu í rúmgóðu listamannarými í Borgartúni. Rýmið er um 230 fermetrar að stærð og er ætlað allt að fjórum listmálurum sem deila því með sér í allt að tvö ár, án kostnaðar. Aðstaðan gefur góða möguleika til að vinna með stærri verk og skapa sér eigið vinnusvæði innan sameiginlegrar aðstöðu.
Nánar um listasjóðinn: https://www.lia.is/
bottom of page
