top of page

Kveðja fráfarandi formanns

508A4884.JPG

laugardagur, 30. maí 2026

Kveðja fráfarandi formanns

Takk fyrir mig!

Á þeim átta árum sem ég hef verið formaður SÍM hef ég verið þeirrar gæfu njótandi að eiga samstarf við margt frábært fólk, bæði stjórnarmenn á hverjum tíma, félagsmenn SÍM sem hafa lagt sambandinu lið og starfsfólki SÍM, fólk sem af heilum hug hefur látið málefni SÍM sig varða. SÍM nýtur þess að stjórnin skuli ávalt vera skipuð sjálfstætt starfandi myndlistarmönnum, sem miðla af faglegri reynslu sinni og leggja fram ómælda vinnu til að efla starfsgrundvöll og hagsmuni myndlistarmanna.

Kæru félagsmenn SÍM það hefur verið einstakt að hafa tækifæri til að vinna að margvíslegum málefnum myndlistarmanna. Að baki hvers einasta ávinnings sem unnist hefur í málum okkar liggur þrotlaus vinna stjórnar, hóps áræðinna félagsmanna og starfsmanna SÍM. Fyrstu skrefin í sumum baráttumálum okkar, sem hafa náðst í gegn nýverið, voru stigin strax á stofnári SÍM, en hafa ekki fengið hljómgrunn stjórnvalda fyrr en á síðustu árum. Hvert einasta mál sem unnist hefur byggir á þrautsegju og samstöðu myndlistarmanna.
Samstarfið við fulltrúa hinna ýmsu opinberu stofnana sem SÍM á samskipti við hefur verið í traustum farvegi og málefni okkar mæta vaxandi skilningi þeirra.

Ég þakka öllum samstarfsfólki undanfarinna ára, um leið og ég óska nýrri stjórn farsældar í starfi, og félagsmönnum velfarnaðar í listinni og lífinu.

Takk fyrir mig,
Anna Eyjólfs

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page