top of page

Kristín Tryggvadóttir: SUMARSMELLUR í Gallerí Göng

508A4884.JPG

miðvikudagur, 31. maí 2023

Kristín Tryggvadóttir: SUMARSMELLUR í Gallerí Göng

Fimmtudaginn 1. júní kl 15-18 opnar Kristín Tryggvadóttir myndlistarkona einkasýningu sína undir yfirskriftinni, SUMARSMELLUR , í Gallerí Göngum.

Kristín er Kópavogsbúi og er með vinnustofu þar. Hún var félagi í Anarkíu Listasal, síðar Gallerí GÁTT. Hún er kennari frá KHÍ, stundaði nám við Handíða og Myndlistaskólann, Myndlistaskóla Reykjavíkur og Kópavogs og fór í námsferðir til Danmerkur og Ítalíu.

Kristín, er í SÍM, Íslenskri grafík og Vatnslitafélagi Íslands, og hefur haldið fjölda einka- og samsýninga hérlendis og í Danmörku, Ítalíu, New York, Svíþjóð, Bretlandi og Finnlandi.

Verk Kristínar á sýningunni spegla áhuga hennar á birtunni, árstíðunum og síbreytilegri náttúrunni. Hún hefur næmt auga fyrir litbrigðum landsins og leik ljóss og skugga.

Sýningin stendur yfir frá 1. júní fram í miðjan júlí 2023.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page