Kristín Karólína Helgadóttir: Myndrænn myrkvi / Scenic Eclipse

fimmtudagur, 13. ágúst 2026
Kristín Karólína Helgadóttir: Myndrænn myrkvi / Scenic Eclipse
Laugardaginn 15. ágúst kl. 16 opnar sýning Kristínar Karólínu Helgadóttur Myndrænn myrkvi / Scenic Eclipse í Gallerí Úthverfu á Ísafirði. Listakonan verður á staðnum og boðið verður uppá léttar veitingar og spjall.
Kristín Karólína Helgadóttir (f. 1988) lauk BA námi í heimspeki árið 2015 frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í myndlist frá KASK í Belgíu árið 2021. Kristín Karólína notar ýmsa miðla í vinnu sinni til þess að kasta ljósi á þá innri togstreitu og dulinn tvískinnung á milli vestrænna lífshátta og náttúrunnar sem maðurinn byggir. Hún skapar draumkenndar myndhverfingar sem fléttast saman við leik með hið hversdagslega, óræða, minnið og margbreytileika tilverunnar. Í verkum hennar má skynja möguleika á að fortíðin sé samofin nútíðinni og að hlutirnir í kringum okkur búi ætíð yfir mörgum lögum hið innra. Árið 2024 átti hún verk á sýningu Listasafns Reykjavíkur D-vítamín, opnaði sýninguna Ómælislaug í Kling & bang tók þátt í samsýningunni Hinn mildi vefur kynslóða, Blind Date í Ásmundasal og nú seinast "Mamma, ertu að hugsa um tímann" í Glerhúsinu.
