top of page

Kristín Gunnlaugsdóttir opnar sýninguna Selfie í Gallerí Kverk

508A4884.JPG

fimmtudagur, 9. nóvember 2023

Kristín Gunnlaugsdóttir opnar sýninguna Selfie í Gallerí Kverk

Kristín Gunnlaugsdóttir opnar sýninguna Selfie í Gallerí Kverk (Garðastræti 37), laugardaginn 4. nóvember, kl. 15:00.

Í mörgum verka minna gegnum tíðina hef ég fjallað um konuna og kvenímyndina.

Sýningin Selfie er ekki undanskilin. Hún endurspeglar samtíma okkar og hluta þeirrar kvenímyndar sem ég sé í honum.

Áhrifavaldar á Instagram minna mig á helgimyndir vestrænnar listasögu þar sem fyrirmyndirnar voru upphafnar. Þessi verk eru unnin á tréplötur með fornri tækni helgimyndanna, máluð með eggtemperu og lögð blaðgulli.

Frá því hugmyndin um einstaklinginn fæddist höfum við verið upptekin af ímyndarsköpun, að skapa okkur ímynd út á við, reyna að hafa áhrif á það hvernig aðrir sjá okkur og hvernig við sjáum okkur sjálf.

Orðið sjálfa vísar til þess að fanga sjálfið á mynd. Er það uppstillt og leikstýrt sjálf eða nýtum við okkur hlutverkaleik og sköpunargleði? Er einhver sjálfsmynd raunverulega á forsendum manns sjálfs?

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page