Kristín Gunnlaugsdóttir: Kveðja
fimmtudagur, 14. nóvember 2024
Kristín Gunnlaugsdóttir: Kveðja
Sýning Kristínar Gunnlaugsdóttur, Kveðja, opnar nk laugardag, þann 16. nóvember kl 16:00. Sýningin stendur opin frá 16. nóvember til 7. desember í Portfolio galleri Hverfisgötu 71.
,,Rammarnir eru sumir flúraðir og bera þess merki að hafa búið við aðrar kringumstæður áður en þeir komu í það hlutverk sem þeir gegna nú. Kannski áfínu heimili eða í lítilli höll. Aðrar spýtur hér hafa haldið saman þungri steypu á meðan hún harðnaði og tók sig. Mótatimbur. Þetta eru grófar spýtur, óheflaðar með flísum.
Hin fínlega lína þráðarins er teikningin lifandi komin. Teikningin, grunnur myndlistar í gegnum árþúsundin missir aldrei gildi sitt. Tjáningin sem birtist í hraðri teikningu er nostursamlega endurframkölluð með nál og þræði. Nál er auðvitað eitt mesta galdratæki siðmenningarinnar. Hún getur saumað hluti saman.
- Sigrún Hrólfsdóttir
Kristín Gunnlaugsdóttir er fædd á Akureyri 1963. Hún stundaði nám við Myndlistaskólann á Akureyri, Myndlista- og Handíðaskóla Íslands frá 1984-87, lærði íkonagerð í klaustri í Róm á Ítalíu 1987-88 og útskrifaðist frá Accademia di belle Arti í Flórens 1988-94. Kristín hefur eingöngu starfað við myndlist, haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum, heima og erlendis. Verk hennar eru fjölþætt í tækni en byggja á klassískri hefð málaralistarinnar. Hún vinnur með teikningu, málun á pappír og striga, eggtemperu á tré með blaðgulli og saumuðverk á striga. Verk Kristínar eru í eigu helstu opinberra safna landsins, ásamt fjölda fyrirtækja og einkaaðila. Kristín hefur einnig verið stundakennari við Myndlistaskólann í Reykjavík og Listaháskóla Íslands frá 2016. Hún hefur fengið ýmsar viðurkenningar fyrir list sína og var veitt fálkaorðan árið 2018 fyrir framlag sitt til myndlistar.