top of page

Kling & Bang: Blowout - Samsýning

508A4884.JPG

miðvikudagur, 17. ágúst 2022

Kling & Bang: Blowout - Samsýning

Verið hjartanlega velkomin á opnun sýningarinnar Blowout, laugardaginn 20. ágúst kl 17, með glænýjum verkum listamannanna Joakim Derlow og listamannatvíeykisins Ellinor Aurora Aasgaard og Zayne Armstrong

Á sýningunni sýnir Joakim Derlow ný verk sem öll eru unnin út frá hugmyndum um sögulegt samhengi rekaviðs og tengingar hans við þjóðsögu Grettis Ásmundssonar. Verkin eru kímið viðbragð við íslenskum sagnaheim og menningu þar sem hann skoðar þá brenglun og þann misskilning sem gjarnan á sér stað þegar erlendir gestir heyra staðbundnar sögur og staðreyndir.
Listamannateymið Ellinor Aurora Aasgaard og Zayne Armstrong sýna málverk og lágmyndir sem hafa skírskotanir til leiktjalda- og kvikmyndagerðar. Ummerki um neyslu einstaklingsins eru í forgrunni ásamt skírskotunum í afþreyingarmenningu sem gefa vísbendingu um hrörnun vestrænnar menningar. Snjallsíminn iCrack sem gerður er úr Wasa hrökkbrauði er auglýstur á sjónvarpsskjá, skuggamynd gerfilims fellur á pizzakassa og Elsa í Frozen hefur undirgengist viðhald listamannanna.
Sýningin stendur til 24. september, Kling & Bang er opið mið-sun frá 12-18.

Nánar á https://fb.me/e/2GCDZP0fC

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page