top of page

Kjarvalsstofa í París: Opið fyrir umsóknir um dvöl

508A4884.JPG

miðvikudagur, 16. nóvember 2022

Kjarvalsstofa í París: Opið fyrir umsóknir um dvöl

Kjarvalsstofa er stúdíóíbúð/vinnustofa í miðborg Parísar, sem listamenn geta sótt um að fá leigða. Stúdíóið er 40 fm og er íbúðin hluti af alþjóðlegu listamannamiðstöðinni Cité Internationale des Arts. Íbúðin er staðsett í miðborg Parísar, skammt frá Notre Dame dómkirkjunni. Kjarvalsstofa er í umsjá Reykjavíkurborgar og menningar- og viðskiptaráðuneytisins.

Umsóknarfrestur fyrir dvöl í Kjarvalsstofu á tímabilinu maí 2022 - apríl 2023 er liðinn. Næst verður opnað fyrir umsóknir 15. nóvember 2022 fyrir dvöl í Kjarvalsstofu á tímabilinu maí 2023 - apríl 2024.

Íbúðin er leigð út í tvo mánuði í senn. Auk stúdíóíbúðarinnar er hægt að leigja aðgang að öðrum rýmum í listamannamiðstöðinni, til að mynda æfingarýmum með flygli eða píanói, aðstöðu til tónleikahalds, leirbrennsluofni o.fl. Sjá nánar í verðlista hér neðst á síðunni. Tilvonandi íbúar greiða fyrirfram tryggingargjald sem jafngildir eins mánaðar leigugjaldi. Gjaldið er endurgreitt við brottför ef vinnustofan er yfirgefin í góðu ástandi.

Stjórn er ekki heimilt að úthluta íbúðinni í skemmri tíma. Sótt er um dvöl í Kjarvalsstofu rafrænt hér á vefnum. Með umsókn þurfa eingöngu að fylgja gögn sem umsækjandi telur að styðji umsóknina. Stjórn Kjarvalsstofu fer yfir umsóknirnar og tekur ákvörðun um hverjir hljóta úthlutun. Einnig eru valdir varamenn úr hópi umsækjenda. Stjórnin getur ákveðið að úthluta ekki öllum tímabilunum komi sérstakar aðstæður upp. Öllum umsækjendum er svarað um leið og úthlutun hefur verið ákveðin.

Ætlast er til að dvalargestir skili inn stuttri greinargerð að lokinni dvöl til stjórnar Kjarvalsstofu þar sem fram komi lýsing á unnu verkefni og afrakstri dvalarinnar.

Sækja um hér: https://reykjavik.is/kjarvalsstofa-i-paris

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page