top of page

Katrín Elvarsdóttir: Döff leiðsögn í Hafnarhúsi

508A4884.JPG

miðvikudagur, 11. febrúar 2026

Katrín Elvarsdóttir: Döff leiðsögn í Hafnarhúsi

Döff leiðsögn í Hafnarhúsi |
Katrín Elvarsdóttir: Blómstrandi framtíð

Fimmtudag 12. febrúar kl. 20.00

Bryn Nóel Francis, táknmáls- og listfræðingur, verður með döff leiðsögn um sýninguna Katrín Elvarsdóttir: Blómstrandi framtíð, fimmtudagskvöldið 12. febrúar kl. 20.00 í Hafnarhúsi. Safnið er opið til kl. 22.00 alla fimmtudaga.

Á sýningunni Blómstrandi framtíð beinir Katrín sjónum sínum að plöntum sem hafa ferðast milli heimkynna.
Í verkunum mætast grípandi fegurð og hugleiðingar um uppruna. Hún veltir fyrir sér hvað það þýðir að tilheyra, að festa rætur – vera aðfluttur og samt hluti af heild.

Miði á safnið gildir, frítt inn fyrir handhafa árskorts og menningarkorts og fyrir börn 18 ára og yngri.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page