top of page

Katrín Agnes Klar: Scarlet Red, Royal Blue

508A4884.JPG

fimmtudagur, 28. nóvember 2024

Katrín Agnes Klar: Scarlet Red, Royal Blue

Katrín Agnes Klar "Scarlet Red, Royal Blue" í y gallery . Sýningin stendur til 30. nóvember næstkomandi.

Scarlet Red, Royal Blue er framhald verka Katrínar Agnesar þar sem hún vinnur með litaduft sem efnivið. Arkitektúr og virkni sýningarrýmisins leiddu Katrínu til að þróa efnið á þann hátt að það væri óáþreyfanlegt svo úr varð litaður reykur, framleiddur úr litadufti. Pigment og loft. Eftir tilraunaferli í samvinnu við efnafræðinga, tókst að framleiða tvær reykblöndur úr Kremer pigmentunum Quinacridone Scarlet, PR 207 og Phthalo Blue, Royal Blue, PB 15:3. Þegar kveikt er í duftinu, sem er pressað í töfluform, myndast rauður eða blár reykur - Scarlet Red eða Royal Blue.

Sýningin samanstendur af ljósmyndum af því augnabliki þegar reykurinn verður til, einskonar augnabliks skúlptúrum.

Sýningin er styrkt af Myndlistarsjóði

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page