top of page
Kópavogur: Lista- og menningarráð Kópavigs auglýsir eftir bæjarlistamanni
föstudagur, 8. apríl 2022
Kópavogur: Lista- og menningarráð Kópavigs auglýsir eftir bæjarlistamanni
Lista- og menningarráð Kópavogs auglýsir eftir umsóknum eða ábendingum um bæjarlistamann Kópavogs. Þeir listamenn koma einir til greina sem eiga lögheimili í Kópavogi.
Bæjarlistamaður Kópavogs skal vera tilbúinn að vinna með Kópavogsbæ að því að efla áhuga á list og listsköpun í bænum og taka þátt í viðburðum bæjarins með það að leiðarljósi. Styrkupphæð bæjarlistamanns er 1,5 milljónir króna.
Lista- og menningarráð fer yfir umsóknir og ábendingar.
Umsókn eða ábendingar skal senda fyrir 16. apríl á netfangið menning@kopavogur.is.
Reglur um tilnefningu bæjarlistamanns Kópavogs er að finna á www.meko.is
bottom of page