top of page

Kópavogur: Auglýst eftir umsóknum um styrki úr lista- og menningarsjóði fyrir 2023.

508A4884.JPG

fimmtudagur, 22. september 2022

Kópavogur: Auglýst eftir umsóknum um styrki úr lista- og menningarsjóði fyrir 2023.

Lista- og menningarráð Kópavogsbæjar auglýsir eftir umsóknum um styrki úr lista- og menningarsjóði vegna verkefna á árinu 2023.

Hlutverk sjóðsins er að efla menningarlífið í Kópavogi í samræmi við menningarstefnu bæjarins. Styrkir eru veittir til einstaklinga, listhópa, félagasamtaka, fyrirtækja og stofnana á sviði lista, hönnunar eða arkitektúrs.

Við mat á umsóknum verður sérstaklega litið til verkefna og viðburða sem þjóna íbúum í sem flestum hverfum bæjarfélagsins og falla að menningarstefnu bæjarins.

Umsækjendur verða að sýna fram á gildi verkefnisins fyrir lista- og menningarlífið í Kópavogi, getu til að hrinda verkefninu í framkvæmd og leggja fram skýra fjárhagsáætlun.

Lista- og menningarráð fer yfir umsóknir.

UMSÓKNIR ÞURFA AÐ HAFA BORIST FYRIR 23. OKTÓBER 2022.

Rafræn umsóknareyðublöð og úthlutunarreglur má nálgast á heimasíðu MEKÓ - https://menning.kopavogur.is/menning-i-kopavogi/styrkir-og-stefna/

Nánari upplýsingar veitir Soffía Karlsdóttir, forstöðumaður menningarmála í Kópavogi, í gegnum netfangið: soffiakarls@kopavogur.is.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page