top of page

Kærleikskúlan 2023 - Guðjón Ketilsson

508A4884.JPG

fimmtudagur, 7. desember 2023

Kærleikskúlan 2023 - Guðjón Ketilsson

HEIMUR eftir Guðjón Ketilsson er Kærleikskúla ársins 2023. Sala Kærleikskúlunnar fer fram í völdum verslunum um land allt dagana 7. - 21. desember og í netverslun SLF. Allur ágóði af sölunni rennur óskiptur til sumarbúða Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra í Reykjadal.

HEIMUR

Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna hjúpar Kærleikskúluna árið 2023. Þunn og viðkvæm glerkúlan er undirlag og sögusvið hins mannlega sannleika, harms og áreitis sem kallar á sammannlegan sáttmála um að halda utan um mennskuna og gildi hennar gagnvart fáum en þó valdamiklum öflum. Mannréttindayfirlýsingin er rituð með bláum lit sem er ætlað að minna á jarðkúluna okkar, en vatn nemur 70% af heildaryfirborði hennar, sem er rétt rúmlega heildarmagn vatns í mannslíkamanum.

Kúlan verður hér til sem listgripur á Íslandi þegar 75 ár eru liðin frá því að sáttmálinn var staðfestur til þess að vinna að friðsamlegum samskiptum þjóða. Yfirlýsingin kveður á um mannréttindi sem allir eiga tilkall til óháð kynþætti, litarhætti, kynferði, tungu, trú, skoðunum, þjóðerni, uppruna, eignum, ætterni eða öðrum aðstæðum. Sköpun Kærleikskúlunnar á sér því uppsprettu í sammannlegri samhygð, náungakærleika og von um friðsamlegri samskipti þjóða.

Guðjón Ketilsson (f. 1956) er einn fremsti og afkastamesti listamaður landsins og hlaut hann Íslensku myndlistarverðlaunin árið 2020. Guðjón hefur haldið yfir þrjátíu einkasýningar, m.a. yfirlitssýninguna Jæja á Kjarvalsstöðum Listasafns Reykjavíkur árið 2022, auk þess að hafa tekið þátt í fjölda samsýninga víða um heim. Verk hans er að finna í öllum helstu listasöfnum á Íslandi og í opinberu rými hérlendis og á Norðurlöndunum.

Guðjón vinnur að jöfnu að gerð teikninga og skúlptúra þar sem handverkið er í forgrunni. Verk hans rýna í mannlegt eðli, líkamann og hversdagslegt umhverfi þar sem kunnuglegir hlutir, form, orð eða ritaður texti eru dregin fram í nýju og gjarnan óvæntu samhengi.

Kærleikskúlan er framleidd í takmörkuðu upplagi og kemur í fallegri gjafaöskju. Kærleikskúlan er fallegur listmunur og skemmtileg til söfnunar en það sem gerir hana dýrmæta er innihaldið – kærleikurinn. Nafn kúlunnar er táknrænt en markmið með sölu hennar er að auðga líf fatlaðra barna og ungmenna og allur ágóði rennur til starfsemi sumarbúðanna Reykjadal þar sem gleði, jákvæðni og ævintýri eru í fyrirrúmi.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page