top of page

Joris Rademaker : Myndlíking trjánna

508A4884.JPG

mánudagur, 12. október 2026

Joris Rademaker : Myndlíking trjánna

Deiglunni, Listagilinu á Akureyri, Opnun föstudaginn 16. október kl 19:00 - 21:00
Sýningin stendur yfir 16.10 - 18.10. 2026

Til sýnis eru eldri og ný verk unnin út frá lífrænu efni. Trén með sínar rætur, stofn, börk og greinar hefur verið innblástur fyrir svarthvítar hvass myndir. Þrívíðu verkin eru samsetningar úr mismunandi lífrænum efnum og fundnum hlutum. Sýningin samanstendur af samtali á milli tvívíðra og þrívíðra verka.
Í gegnum árin verður Joris stöðugt meira meðvitaður um þessa djúpu þrá í náttúrunni til þess að vaxa. Verkin eru oftast táknræn og túlka og tjá tilfinningar og tengsl manns og náttúru á persónulegan hátt.

Joris er hollenskur myndlistamaður sem hefur verið búsettur og starfandi á Akureyri í rúm 30 ár. Hann nam myndlist í Tillburg og í Enschede í Hollandi. Hann hefur haldið fjölmargar einkasýningar m.a. Í Hollandi, á Íslandi, í Svíþjóð og í Þýskalandi. Einnig hefur hann tekið þátt í fjölda samsýninga, s.s. Í Listasafninu á Akureyri og í Listasafni Reykjavíkur.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page