Joris Rademaker: Eitt tré, margar víddir

fimmtudagur, 2. október 2025
Joris Rademaker: Eitt tré, margar víddir
Joris Rademaker opnar sýninguna sína Eitt tré, margar víddir í Deiglunni í Listagilinu á Akureyri, föstudaginn 3. október kl. 17–20.
Þetta er þriðja sýningin í sýningarröðinni í Deiglunni, þar sem ólíkir þættir trésins eru í brennidepli.
Fyrsta sýningin hét Leitin að vatni (2023) og fjallaði um rætur trésins. Á persónulegan hátt tengist þetta því að festa rætur í nýju landi, sem útlendingur.
Önnur sýningin hét Skildar leiðir (2024) og fókusinn var á trjágreinunum. Greinar skipta sér alltaf í tvennt aftur og aftur og þannig getur tréð vaxið. Á táknrænan hátt þýðir það að við þurfum reglulega að skipta um stefnu, að breyta til.
Þriðja sýningin Eitt tré, margar víddir (2025) fjallar um tré sem heild: rætur, stofn, greinar, börk, laufblöð, aldur, súrefnisframleiðslu og efnabreytingar.
Þrettánda nóvember 2024 var mikið suðvestan hvassviðri og stærsta og elsta tré garðsins á heimilinu rifnaði upp með rótum. Tré sem Joris virti fyrir sér daglega og dáðist að í 30 ár.
Því fylgdi sorg og söknuður og fékk Joris til að velta því fyrir sér hvernig mennirnir tengjast trjánum. Reynitré geta orðið jafngömul og heilbrigðar manneskjur, u.þ.b. 80 ár. Tréð gefur skjól, súrefni og fegurð. Timbrið er notað til að kynda, byggja hús, búa til húsgögn og gera skúlptúra.
Prestar geta nærst á reyniberjunum og farið á fyllirí á haustin. Laufblöðin hvísla eða öskra eftir styrkleika vindsins.
Vinnuferlið hófst í nóvember og þróaðist í sérfuga með hvass og penna. Stundum mjög nákvæmar teikningar, stundum formfastar eða táknrænar. Á þessari sýningu eru valdar 24 myndir.
Í vor fór Joris að saga tréð sundur og úr því efni mynduðust nokkrir skúlptúrar sem eru á sýningunni.
Sýningin er aðeins opin þessa einu helgi: laugardaginn 4. og sunnudaginn 5. október frá klukkan 13.00 til 17.00. Listamaðurinn verður á staðnum. Allir velkomnir.


