Jelena Antic & Skúli Arason: Ör jarðar

miðvikudagur, 17. september 2025
Jelena Antic & Skúli Arason: Ör jarðar
Fimmtudaginn 18. september kl. 17–18 verður haldið listamannaspjall þar sem listamennirnir kynna sýninguna, ræða innblástur sinn og vinnuferli. Gestir eru hvattir til að mæta, taka þátt í samtalinu og upplifa sýninguna.
"Jörðin er alsett örum. Ör sem sýna það hvernig leiðin fram á við getur skilið eftir sig djúp sár, jafnvel sprungur. Örin leynast líka innra með okkur. Sum hafa gróið vel önnur illa en án þeirra værum við ekki hér - nákvæmlega eins og við erum."
Jelena Antic myndlistarmaður og Skúli Arason hljóðlistamaður sýna Ör jarðar á Korpúlfsstöðum Um er að ræða umlykjandi ljósmynda- og hljóðinnsetning sem dregur fram hinn óvænta og leynda kraft sem býr í náttúrunni.
Á sýningunni má sjá ljósmyndaseríuna Undiralda eftir Jelenu þar sem sjónum er beint að því hvernig tíminn setur mark sitt á náttúruna, hvort sem um er að ræða hraða kólnun hrauns eða hægfara niðurbrot efnis. Ör sem kraftar náttúrunnar skilja eftir og setja mark sitt á jörðina með afgerandi hætti.
Út frá ljósmyndaverkum Jelenu hefur Skúli Arason, einnig þekktur sem Sk-Ar, samið tónverk sem berst úr fjórum hátölurum og skapar óvænta og kraftmikla upplifun í hráu rými Korpúlfsstaða.
Sýningin stendur til 21. september og er opin fimmtudaga til sunnudaga frá kl. 14 - 18. Sýningarstjóri er
María Margrét Jóhannsdóttir.
Hér má sjá umfjöllun frá RÚV á ensku:
https://www.ruv.is/english/2025-09-17-ruv-english-radio-the-nightspell-kristoffer-ala-ketola-453747
Um Jelenu Antic:
Jelena Antic (f. 1979) er myndlistarmaður frá Belgrad, Serbíu en hefur undanfarin ár búið og starfað í Reykjavík. Jelena er með meistaragráðu í myndlist frá Listaháskólanum í Belgrad auk þess sem hún er grafískur hönnuður. Jelena hefur verið virk í sýningarhaldi á Íslandi auk þess sem verk hennar hafa verið sýnd erlendis í löndum á borð við Frakkland, Bandaríkin, Serbíu og Kúbu. Í list Jelenu má greina lotningu fyrir tímanum þar sem hún beinir sjónum sínum að náttúrulegum ferlum og áhrif þeirra á umhverfið. Verk hennar kalla fram hugleiðingar um tengsl mannsins við hina síbreytilegu krafta náttúrunnar sem sumir eru áþreifanlegir en aðrir óræðari og erfiðara er að henda reiður á.
Um Skúla Arason:
Skúli Arason tónlistarmaður starfar undir listamannsheitinu Sk-Ar. Hann á að baki víðtæka reynslu úr tónlistarheiminum og hefur sent frá sér þrjár breiðskífur. Nýjustu verk hans eru Ós, plata sem unnin var út frá samnefndum bæ, og svo raftónlistarverkið 82-24-J6 sem var frumflutt í Listasafni Reykjavíkur. Tónverk Skúla innihalda gjarnan upptökur unnar úr umhverfishljóðum sem sett eru í fjölbreytt samhengi við önnur hljóðfæri og hljóðgervla. Í sköpun sinni leitast hann við að fanga kraft náttúrunnar og hið óvænta sem umlykur hana.


