Jóna Hlíf Halldórsdóttir opnar einkasýningu í Gallerí KVERK

fimmtudagur, 3. október 2024
Jóna Hlíf Halldórsdóttir opnar einkasýningu í Gallerí KVERK
Laugardaginn 5. október kl 15.00 opnar RÓT, einkasýning Jónu Hlífar Halldórsdóttur, í Gallerí Kverk. Sýningin stendur til 2. nóvember og er opið eftir samkomulagi á virkum dögum og frá 12-15 á laugardögum.
Á sýningunni eru ný verk þar sem unnið er með merkingu, ljós, óræðni, skynjun og skilning. Líkt og í fyrri sýningum Jónu Hlífar mynda verkin heild, nokkurs konar innsetningu inn í rýmið. Að þessu sinni er unnið áfram með eldri verk að hluta eða tengingar milli þeirra.
Sýningin RÓT varð til sem nokkurs konar framhaldssýning út frá verkum sem ég sýndi í Mjólkurbúðinni á Akureyri sl. sumar. Þar var ég að vinna með andstæður, liti og gler. Sýningin var frekar tvíhyggjuleg, þótt líka væri unnið út frá hugmyndinni um að andstæður væru í raun ekki til. Þessi sýning er rökrétt framhald eða systursýning.
Ég hef unnið með marga efniviði í gegnum tíðina, en um þessar mundir er ég með fókus á gler. Samhliða því er ég að vinna með liti, grunnliti og samband á milli litanna. Bæði samval lita og litablöndun. Þetta er bæði frumstætt en líka gaman. Fyrir mér er hálf aðferðin fólgin í nýrri leið með efni og þessi tegund af sköpun og framsetningu er ný fyrir mér. Þetta býður upp á margar leiðir og úrvinnslu í margar áttir.
Að sama skapi er óendanleikinn í möguleikum tungumálsins endalaus hugmyndabrunnur, í raun. Útgangspunkturinn núna felst í ímyndinni um pörun og óræði merkingar í einföldustu tegund lýsinga. Ég hef byggt verk út frá því áður, en að þessu sinni vildi ég skapa eins margar paranir og mér datt í hug með fimm og þriggja stafa orðum, bara eitt lýsingarorð, eitt nafnorð. Hver samsetning ætti að vísa á eitthvað sem fólk þekkir, en er samt ekki eitthvað sérstakt. Ég hafði áður unnið með samsetningarnar: Gömul von og Óljós þrá. Síðan leyfði ég huganum að reika til að finna systursamsetningar, svipuð orðasambönd.
Fyrir mér eru merking og skilningur viss tegund af galdri. Á bak við flest öll orð eru myndir, en því minni mynd sem er á bak við orð, því meiri myndlist finnst mér oft vera í þeim. Kannski er það jafnvel ekki í orðunum sjálfum sem myndlistin skapast, kannski verður hún til í spennunni sem skynjun þeirra myndar.
Jóna Hlíf (f. 1978) útskrifaðist með MFA gráðu frá Glasgow School of Art í Skotlandi 2007 og MA í listkennslu frá Listaháskóla Íslands 2012. Textaverk, tilraunir með efni og innsetningar eru kjarninn í myndrænni tjáningu verka Jónu Hlífar. Texti sem áferð: sem leið til að birta hugsanir, við að setja fram og skapa samfélag, eða sem grundvöllur hugmynda. Í verkunum hefur Jóna Hlíf m.a. fengist við fyrirbærin kjarna, tíma og ímynd sögunnar.
Verk Jónu Hlífar hafa verið sýnd víða í söfnum og galleríum bæði innanlands og erlendis. Þar ber helst að nefna einkasýningar í Listasafni Reykjavíkur, Listasafninu á Akureyri og Berg Contemporary. Jóna Hlíf hefur tekið þátt í fjölda samsýninga, meðal annars í Listasafni Íslands, Listasafni Árnesinga, Kuckei+Kuckei og Nýlistasafninu. Á ferli sínum hefur Jóna Hlíf hlotið fjölda styrkja og eru verk hennar í eigu opinberra listasafna. Árið 2022 kom út bókin Brim Hvít Sýn sem fjallar um myndlist Jónu Hlífar, innsetningar og textaverk, sem hún hefur skapað undanfarna tvo áratugi. Bókin hlaut silfurverðlaun FÍT fyrir bókakápu og bókahönnun.