top of page

Jóna Berg Andrésdóttir - Uppspretta

508A4884.JPG

fimmtudagur, 5. desember 2024

Jóna Berg Andrésdóttir - Uppspretta

Jóna Berg Andrésdóttir sýnir olíu- og vatnslitamyndir á sýningunni Uppspretta sem opnaði nýverið í Borgarbókasafninu Spönginni.

Hugmyndir sínar sækir Jóna í land og náttúru sem hún þekkir vel eftir búsetu í Eyjum og margar ferðir um landið, en uppsprettan kemur líka úr dýraríkinu og mannlífinu, ekki síst úr hennar nánasta ranni.

Jóna hefur fengist við listmálun frá unga aldri og á að baki fjölbreytt nám í listum, meðal annars í Handíða- og myndlistarskóla Reykjavíkur, Mími og Myndlistarskóla Kópavogs. Jóna stundar nú listmálun í Borgum hjá Pétri Halldórssyni leiðbeinanda.

Sýningin stendur til 6. janúa og má skoða á opnunartíma safnsins, mán-fim 10-18, fös 11-18 og lau 11-16.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page