Jónína Björg Helgadóttir : Í eigin heimi

þriðjudagur, 15. september 2026
Jónína Björg Helgadóttir : Í eigin heimi
Ég er ein af þeim sem var alltaf í eigin heimi. Alltaf með nefið ofan í fjörunni eða móanum og leið vel í eigin félagsskap. Náttúran varð umhverfi huga míns. Bakgrunnur undirmeðvitundarinnar. Lyktin af þaranum og mosanum umvafði allt og náttúran með öll sín sterku litbrigði, skrítnu smáatriði og áhugaverðu form varð hluti af mér. Þegar ég mála er eins og undirmeðvitund mín sé prentuð út. Og þarna er konan. Ég er hún. Þú ert hún. Hún sýnir okkar mannlegu tilfinningar. Á meðal steina, þara og náttúru sem er stundum augljós og stundum óáþreifanleg, er frelsið til að vera.” segir Jónína Björg.
Á síðustu árum hefur Jónína haldið nokkrar einkasýningar á málverkum og grafíkverkum þar sem hún vinnur með þarann, fjöruna og konuna. Form hafa birst og breyst og konan hefur hörfað lengra inn í bakgrunninn, þar til að á nýjustu verkunum, er hún horfin. Hvað verður næst segir Jónína ekkert um, nema að það muni koma í ljós þegar þar að kemur. Hún viti það ekkert frekar en við hin hvað undirmeðvitundinni muni liggja á hjarta þá.
Jónína Björg Helgadóttir er myndlistarmaður fædd 1989, sem býr og starfar á Akureyri. Hún útskrifaðist 2015 úr fagurlistadeild Myndlistaskólans á Akureyri og hefur síðan haldið tíu einkasýningar, bæði á Íslandi og í Kanada. Þetta er hennar ellefta einkasýning. Hún hefur tekið þátt í fjölda samsýninga, m.a. í Danmörku og í Palais de Tokyo í París. Hún var einn stofnenda listarýmisins Kaktus, hefur unnið sem verkefnastjóri skapandi verkefna á Akureyri og rak þar til nýlega veitinga- og menningastaðinn Majó - Food and Culture í elsta húsi Akureyrar, Laxdalshúsi, þar sem hún sýndi sín verk og hafði vinnustofu.
Verk hennar eru fígúratíf og hverfast að miklu leyti um konuna og hennar hugsanir og tilfinningar, sem og tengingar við náttúruna. Mikil litagleði og skörp birta einkenna verkin, sem eru einlæg og persónuleg.
Sýningin í Safnahúsinu er opin á opnunartíma hússins, þri-fös kl. 13-16, lau kl. 11-16. Hún stendur frá 19. september 2026 - 15. nóvember 2026.
