Jónína Björg Helgadóttir: Af flækjum og fegurð

fimmtudagur, 21. maí 2026
Jónína Björg Helgadóttir: Af flækjum og fegurð
Leyni,
Hafnarstræti 95, Akureyri
21.05 - 03.6.2026
Jónína Björg Helgadóttir myndlistamaður opnar sýninguna Af flækjum og fegurð á Leyni í miðbæ Akureyar, fimmtudaginn 21. maí. Sýningin samanstendur af fimm glænýjum verkum, unnum af þessu tilefni. Verkin eru olíumálverk, máluð á við sem hefur verið sagaður í óregluleg form sem líkjast helst steinvölum.
,,Ég hef lengi málað konur í náttúrunni. Náttúran hefur orðið meira abstrakt upp á síðkastið og ég vissi að konan væri að hverfa úr verkunum, hvort sem það er varanlegt eða tímabundið. Nú sýni ég verk sem á er ekkert fólk. Náttúran er þarna ein, í sínum minnstu smáatriðum. Fyrirmyndirnar eru úr göngutúrum og fjöruferðum, og því sem vekur áhuga minn í náttúrunni. Það er eins og ég sé alltaf með nefið ofan í jörðinni því þetta eru mikil smáatriði mörg hver. Svo kem ég á vinnustofuna og mála eftir fyrirmyndum í smá stund og eftir það tekur hugmyndaflugið við og breytir og snýr á hvolf eftir því hvað heillar.”
Í náttúrunni minnir það stóra oft á það smáa. Stjörnuþokur minna á kuðunga, eins og hægt er að túlka verk af fjöru á þann hátt að maður sjái sitt eigið líf í því. Það er fegurð í flækjunum, því erfiða og því einlæga.
Þetta er níunda einkasýning Jónínu Bjargar, sem hefur verið starfandi myndlistamaður frá því að hún útskrifaðist frá Myndlistaskólanum á Akureyri 2015. Verk hennar eru fígúratív, með mikla áherslu á konuna, tilfinningu og náttúruna. Fyrir utan einkasýningar hefur Jónína tekið þátt í fjölda samsýninga, erlendis og hér heima. Verk eftir hana má finna í persónulegri og opinberri eigu.
Sýningin á Leyni, Hafnarstræti 95, Akureyri, opnar fimmtudaginn 21. maí, kl. 20. Hún stendur í tvær vikur. Öll velkomin!
